#554 Hörður Ægisson og Konráð Guðjónsson - Skaðinn er skeður, kjarasamningar munu bresta

#554 Hörður Ægisson og Konráð Guðjónsson - Skaðinn er skeður, kjarasamningar munu bresta

May 3, 2026 · 1h 23m

About this episode

Þórarinn discusses economic issues, wage agreements, and the euro with guests Hörður and Konráð.

Þórarinn ræðir við Hörð Ægisson, ritstjóra Innherja, og Konráð Guðjónsson, sjálfstæðan ráðgjafa hjá Kontext um efnahagsmál, kjarasamninga og evruna. Konráð segir ríkisstjórnina beita skítamix hagstjórn með því að lækka virðisauka á bensín en að það sé ákveðið örþrifaráð í því að takast á við verðbólguna. Vörugjöld á bíla hafi ekki skilað þeim tekjum sem þau áttu að gera og ríkisstjórnin sé komin í krappan dans ef hlutirnir fari ekki að lagast hratt. Hörður segir atvinnustefnuna góðra gjalda verða en að óvissan í heimsmálunum muni gera hlutina erfiða og til þess að takast á við þær aðstæður þurfi ríkisstjórnin að vera sveigjanleg, sem hann hefur áhyggjur af miðað við áherslur hennar hingað til. Hann spyr hvort að trojuhestur sé innan Samfylkingarinnar sem segir þeim að beita frasa sem reynast svo vera öfugmæli, líkt og verðmætasköpunarhaust og verðlækkunarsumar. Að þeim umræðum loknum er rætt um ESB. Rætt er um það hvort að evran geti bjargað Íslandi, kjarasamninga, hagvöxt í Evrópu, stjórnmálin, umræðuna og fleira. Þeir benda báðir á það að til þess að taka upp evru þurfi vinnumarkaðurinn að breytast. Það sé ekki hægt að komast í form með því að skipta um líkamsræktarstöð heldur…

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Ein Pæling podcast page.