254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn

254 - Kjarnorka, 40 ár frá Chernobyl og Rússar lokka útlendinga á vígvöllinn

April 18, 2026 · 48 min · Episode 251

About this episode

The episode discusses the 40th anniversary of the Chernobyl disaster, the current state of nuclear energy, and the involvement of foreign soldiers in the Ukraine conflict.

Það styttist í að það verði heil 40 liðin frá kjarnorkuslysinu í Chernobyl. Áhrifanna gætir enn, söguna þekkja flestir en það tók nokkurn tíma að fyrir önnur lönd að átta sig á því sem hafði gerst. Sovésk yfirvöld reyndu að halda slysinu leyndu og það var ekki fyrr en geislavirk efni voru farin að berast til og mælast í andrúmslofti nágrannaríkjanna að ljós var að eitthvað verulega alvarlegt hafði gerst. Við rifjum upp söguna. Kjarnorka er þó ekki alslæm og má segja að hún sé komin aftur í tísku eftir orkukreppur síðustu ára, sérstaklega í Evrópu. Við skoðum orkunotkur Evrópuríkja og hvaða áhrif hækkandi orkuverð hefur. En þó að kjarnorkan sé í tísku þá fylgja henni margir ókostir, sá stærsti er kjarnorkuúrgangurinn og hvað á að gera við hann. Finnar opna á næstu vikum fyrstu geymslustöðina fyrir kjarnorkuúrgang, sem er neðanjarðar undir stærsta kjarnorkuveri Finna. Talið er að á milli tuttugu og þrjátíu þúsund erlendir hermenn berjist með Rússlandsher á vígvellinum í Úkraínu, langflestir frá fátækum ríkjum. Hluti þeirra hélt að sín biði vinna í Rússlandi, til dæmis við trukkaakstur eða í landbúnaði, en endaði svo á víglínunni. Vegabréfin eru tekin af þeim, rússnesk stjórnvöld…

More episodes of Heimskviður

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Heimskviður podcast page.