This episode discusses the lack of success of China in football despite significant investments and the broader implications in sports and politics.
Sumarið hefur líklega farið í áhorf á heimsmeistaramótið í fótbolta hjá mörgum og því fannst okkur við hæfi að helga þennan þátt íþróttum. Úrslitaleikurinn er á morgun og þá er hægt að stytta sér stundir með því til dæmis að velta því fyrir sér af hverju Kínverjar eru ekki betri í fótbolta en raun ber vitni. Það er áhugavert að fjögur af fimm fjölmennustu ríkjum heims taka ekki þátt í HM, Indland, Indónesía, Pakistan og jú Kína. Þrátt fyrir að hinn annálaði fótboltaáhugamaður og forseti landsins, Xi Jinping, hafi sett ævintýralegar fjárhæðir í að byggja fótboltaskóla, fótboltavelli, að þjálfa upp stjórstjörnur heima við og flytja þær inn sömuleiðis til að spila í ört stækkandi efstu deild kínverska boltans, þá er Kína hvergi nærri háleitum markmiðum sínum. Sem eru að komast á HM karla í fótbolta, halda mótið og vinna það – allt fyrir árið 2050. Eða það eru yfirlýstu markmiðin. Vafalaust vakir sömuleiðis fyrir forsetanum að gera Kína meira gildandi í allri pólitíkinni í kringum fótboltann. Eins og Sádar og Katarar hafa gert með glimrandi árangri. En hvers vegna er þessi fjölmenna þjóð ekki betri í einni vinsælu íþrótt heims. Oddur Þórðarson reynir að svara því. Það hafa fleiri…
Guests: Oddur Þórðarson, Bjarni Pétur Jónsson
Places: Kína, Indland, Indónesía, Pakistan, Sádar, Katarar
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Heimskviður podcast page.