
The episode discusses the Steam Machine and the delay of Grand Theft Auto VI among other gaming news.
Leikjavarpið vaknar aftur til lífsins eftir ljúfan (og aðeins of langan) sumardvala. Þeir Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn og Bjarki Þór ræða um það helsta úr heimi tölvuleikja í 62. þætti Leikjavarpsins. Helsta umræðuefni þáttarins er nýr vélbúnaður sem Valve kynnti til sögunnar fyrir skemmstu - Steam Machine, Steam Controller og Steam Frame. Mun Valve breyta leikjatölvumarkaðnum eins og við þekkjum hann? Hvaða áhrif mun nýja tölvan hafa á til dæmis Xbox leikjatölvuna frá Microsoft? Fleira efna er tekið fyrir í þættinum og má þar helst nefna seinkunina á Grand Theft Auto VI, Icelandic Game Fest sem fram fer á Arena og Steam og Master Lemon: The Quest for Iceland svo eitthvað sé nefnt. Mynd: Steam Machine frá Valve https://store.steampowered.com/sale/steammachine
Hosts: Daníel Rósinkrans, Sveinn Aðalsteinn, Bjarki Þór
Organizations: Valve
Products: Steam Machine, Steam Controller, Steam Frame, Grand Theft Auto VI
Books & works: Master Lemon: The Quest for Iceland
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Leikjavarpið - Hlaðvarp Nörd Norðursins podcast page.