The episode discusses the dangers faced by civilians in Kherson, Ukraine due to drone attacks and the remarkable comeback of golfer Anthony Kim after years of struggle.
Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Skyggnið er verra og þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers. Kherson er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnipro. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum er myndavél og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti, jafnvel börnum, og að bílum á ferð. Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og Rússarnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa. Dagný Hulda Erlendsdóttir fjallar um málið. Anthony Kim vann golfmót á dögunum. Kylfinga vinna golfmót vikulega, af hverju er þetta svona merkilegt? Jú kannski vegna þess að Anthony Kim hafði ekki unnið golfmót í að verða 15 ár. Hann var með þeim bestu þegar hann var yngri, rétt rúmlega tvítugur og hann átti framtíðina fyrir sér þegar hann meiddist. Þessi meiðsli höfðu gríðarleg andleg áhrif á hann og hann leiddist svolítið inn á ranga braut í lífinu og hætti alfarið að spila golf. Eftir rúman…
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Heimskviður podcast page.