The episode discusses recent elections in the Faroe Islands and Denmark, along with concerns about personal loans and global economic risks.
Samkvæmt okkar útreikningum voru samtals 4.308.068 Norðurlandabúar á kjörskrá í tvennum kosningum sem fóru fram í vikunni. Það var kosið í Danmörku á þriðjudag og í Færeyjum á fimmtudag. Við ætlum að kafa aðeins í úrslitin í báðum löndum, skoða kosningabaráttuna og fleira. Svo segjum við ykkur allt um einkalán sem valda sérfróðum á fjármálamarkaði talsverðum áhyggjum. Hætturnar í heimshagkerfinu eru æði margar um þessar mundir. Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur keyrt verð á olíu og gasi í hæstu hæðir og hlutabréfamarkaðir um allan heim nötra. En þessir atburðir hafa dregið athyglina frá annarri undirliggjandi ógn sem ekki hefur farið jafn hátt en gæti, ef allt fer á versta veg, komið af stað heimskreppu eins og þeirri sem skók fjármálamarkaði árið 2008. Magnús Geir Eyjólfsson segir frá.
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Heimskviður podcast page.