Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands

Friðrik og Fischer: Helgi Ólafsson stórmeistari, rithöfundur og fv. skólastjóri Skákskóla Íslands

June 24, 2026 · 55 min · Episode 173

About this episode

Helgi Ólafsson discusses his experiences and insights on chess, focusing on the lives of Friðrik Ólafsson and Bobby Fischer.

Gestur Kristjáns Arnar er Helgi Ólafsson, stórmeistari, rithöfundur, fyrrverandi skólastjóri Skákskóla Íslands, nýsæmdur heiðursfélagi Skáksambands Íslands og einn kunnasti skáksagnfræðingur landsins . Helgi hefur um áratugaskeið verið í fremstu röð íslenskrar skákar og íslensks skáklífs, skrifað um skák í Morgunblaðið, gefið út fjölda bóka og þar á meðal merkar bækur um tvo af áhrifamestu einstaklingum skáksögunnar, þá Friðrik Ólafsson og Bobby Fischer. Aðalviðfangsefni þáttarins er einmitt þessir tveir skáksnillingar en Helgi þekkir sögu Friðriks Ólafssonar mjög vel og átti persónuleg kynni af Bobby Fischer. Þeir Helgi og Kristján koma víða við í spjalli sínu. Helgi segir margar skemmtilegar og fræðandi sögur af skákmönnum, rifjar upp atburði, skákmót og fleira, m.a. segir hann frá upphafi Reykjavíkurskákmótsins árið 1964 en ein af bókum hans er um Reykjavíkurskákmótið í 50 ár. Lokaspurning til Helga: Hvað hefur skákin kennt þér um lífið? Svar: " Ég held að skákin knýi á um að menn séu dálítið lausnarmiðaðir í því sem þeir gera. Við skákborðið ertu alltaf að klóra þig út úr allskonar vandræðum og ég held að ég sé bara nokkuð góður í því. Ég held að það sé aðallexían ." Bækur…

People in this episode

Host: Kristján Arnar

Guest: Helgi Ólafsson

Topics covered

Keywords

Mentioned in this episode

Organizations: Skákskóla Íslands, Skáksambands Íslands

Books & works: Fischer Comes Home

More episodes of Við skákborðið

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Við skákborðið podcast page.