Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák

Þróun byggðarmála í Reykjavík og skák – Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í skák

July 8, 2026 · 54 min · Episode 175

About this episode

Kristján Örn Elíasson interviews Björgvin Víglundsson about urban development in Reykjavík and its impact on housing and chess.

Kristján Örn Elíasson ræðir við Björgvin Víglundsson, byggingarverkfræðing og fyrrverandi landsliðsmann í skák, um þróun byggðarmála í Reykjavík og áhrif skipulags, byggingarreglna og húsnæðisstefnu á kostnað og gæði íbúðabyggðar. Í upphafi þáttarins ræða þeir félagar um skák og snúa svo aftur að henni undir lok þáttarins. Þar sem Björgvin er byggingarverkfræðingur að mennt, býr yfir víðtækri og fjölbreyttri starfsreynslu og er jafnframt tíður gestur skákþáttarins, var ákveðið að fara að þessu sinni verulega út fyrir hefðbundið efni þáttarins og ræða skipulagsmál í Reykjavík. Í viðtalinu segir Björgvin að núverandi þróun hafi leitt til dýrari framkvæmda, sem geri almenningi sífellt erfiðara fyrir að byggja eigið húsnæði. Hann segir jafnframt að ef hann kæmi að ákvörðunum um skipulagsmál myndi hann láta endurskoða Borgarlínuverkefnið áður en lengra yrði haldið. Að hans mati ætti að kanna hvort unnt væri að ná betri árangri með öðrum og ódýrari úrræðum sem auðvelduðu umferð um höfuðborgarsvæðið. Þrátt fyrir mikilvægi almenningssamgangna telur Björgvin jafnframt nauðsynlegt að horfa til þess að stór hluti fjölskyldna þurfi áfram að reiða sig á einkabílinn vegna vinnu, skóla, íþrótta…

People in this episode

Host: Kristján Örn Elíasson

Guest: Björgvin Víglundsson

Topics covered

Keywords

Mentioned in this episode

Organizations: European Chess Union

Places: Reykjavík, Búkarest, Rúmenía

More episodes of Við skákborðið

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Við skákborðið podcast page.