
Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Total monthly reach
Estimated from 9 chart positions in 9 markets.
By chart position
- 🇪🇸ES · Performing Arts#9410K to 30K
- 🇸🇪SE · Performing Arts#1521K to 10K
- 🇮🇸IS · Performing Arts#1100K to 300K
- 🇳🇿NZ · Performing Arts#513K to 10K
- 🇩🇰DK · Performing Arts#803K to 10K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
36K to 114K🎙 Daily cadence·1,000 episodes·Last published 3d ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
122K to 379K🇮🇸79%🇪🇸8%🇸🇪3%+6 more - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
49K to 152K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
On the show
Recent episodes
1200 kindur fyrir eina langreið | Harmageddon | S04E26
Jul 1, 2026
Unknown duration
Snorri Másson: Fullveldi, fjölmiðlar, transbörn og framtíð Íslands | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E40
Jun 29, 2026
Unknown duration
Bakslagið #40 - Davíð Bergmann
Jun 29, 2026
Unknown duration
Sjálfseyðandi samkennd | Harmageddon | S04E25
Jun 24, 2026
Unknown duration
Sósíalisti vs Álhattur - geta þeir verið sammála um eitthvað? | ESB, Epstein, vók og New World Order | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E39
Jun 23, 2026
Unknown duration
Social Links & Contact
Official channels & resources
Official Website
Login
RSS Feed
Login
| Date | Episode | Description | Length | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 7/1/26 | ![]() 1200 kindur fyrir eina langreið | Harmageddon | S04E26 | Aðgerðarsinninn Paul Watson hefur þjappað Íslendingum saman í að standa vörð um rétt Íslendinga til að stunda hvalveiðar. Starfsmaður Hvals í Hvalfirði sem fíflaðist með hræ einnar skepnunnar var þó ekki að gera málstaðnum neinn greiða enda veiðimenn almennt sammála um að bráðinni skuli sýnd full virðing sem þar var ekki gert. En útfrá dýraverndunarsjónarmiðum er rétt að benda á að slátra þarf 1200 kindum til þess að ná sama magni af kjöti og kemur af einni langreið. Áfram Ísland.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/29/26 | ![]() Snorri Másson: Fullveldi, fjölmiðlar, transbörn og framtíð Íslands | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E40 | Í þessu ítarlega viðtali ræðir Frosti við Snorra Másson um stærstu hitamál samtímans - allt frá fullveldi Íslands yfir í transumræðuna, fjölmiðla, menningarstríð og stöðu stjórnmálanna á Íslandi.Snorri fer ítarlega yfir hvers vegna hann telur að þjóðaratkvæðagreiðslan um ESB sé meira en bara „viðræður“, hvers vegna hann telur fullveldi skipta grundvallarmáli og hvaða áhrif innganga gæti haft á íslenskt samfélag.Í seinni hluta viðtalsins færist umræðan yfir í mun umdeildari svið - þar sem Snorri svarar gagnrýni sem hann hefur sætt fyrir ummæli sín um regnboga- og transfána í skólum, ræðir stöðu barna í kynáttunarvanda, hormónameðferðir, hlutverk Samtakanna '78 og hvort samfélagsumræðan leyfi raunverulega opna umræðu um þessi mál.Þeir ræða meðal annars:• ESB-aðild, fullveldi og valdheimildir Íslands• Evruumræðuna, vexti og húsnæðismarkaðinn• Regnboga- og transfána í skólum• Kynáttunarvanda barna og nálgun heilbrigðiskerfisins• Hormónabælandi meðferðir og þróun í Finnlandi og Bretlandi• Hlutverk Samtakanna '78 í ráðgjöf til barna• Menningarstríð, pólitíska jaðarsetningu og tjáningarfrelsi• Fjölmiðla, pólitíska aktívisma og trúverðugleika fréttamiðla• Innflytjendamál, þjóðernisvitund og pólitíska skautunBeinskeytt, umdeilt og djúpt samtal um Ísland á tímamótum — þar sem tekist er á um framtíð þjóðarinnar, gildi samfélagsins og mörk opinberrar umræðu. #Spjallið #SnorriMásson #Tjáningarfrelsi #Transumræða #Samfélagsmál #StjórnmálFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/29/26 | ![]() Bakslagið #40 - Davíð Bergmann | Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Davíð Bergmann ræða málin. | — | ||||||
| 6/24/26 | ![]() Sjálfseyðandi samkennd | Harmageddon | S04E25 | Í þætti dagsins fjöllum við um lifandi dæmi þess þegar umburðarlyndið ber okkur ofurliði. Borgin Hamtramck í Michigan lagði nefnilega á árum áður mikla áherslu á fjölbreytileika og inngildingu, og samþykkti meðal annars lög sem leyfðu múslimum að útvarpa bænakalli um borginna 5 sinnum á dag. Nokkrum árum síðar tók við meirihluti í borgarstjórn Hamtramck sem hafði á að skipa múslimum eingöngu og þeir tóku sig til og bönnuðu GayPride fánann á opinberum stöðum í borginni. Frjálslyndir inngildingarsinnar telja sig að einhverju leyti svikna af þessari atburðarrás en dæmið þykir sýna hvert stefna fjölmargra Evrópulanda muni leiða okkur ef ekki verður tekið í taumana.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/23/26 | ![]() Sósíalisti vs Álhattur - geta þeir verið sammála um eitthvað? | ESB, Epstein, vók og New World Order | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E39 | Í þessum nýjasta þætti af Spjallinu fær Frosti Logason til sín tvo ólíka gesti: Guðjón Heiðar Valgarðsson, þáttastjórnanda Álhattsins og kunnan greinanda samsæriskenninga, og Tjörva Schiöth, doktorsnema í sagnfræði og yfirlýstan sósíalista.Þrátt fyrir að standa á sitthvorum enda hins pólitíska rófs kemur fljótt í ljós að þeir eru sammála um ýmislegt — sérstaklega þegar kemur að Evrópusambandinu, fullveldi Íslands og gagnrýni á vaxandi miðstýringu valds.Í þættinum ræða þeir meðal annars:• ESB-aðild Íslands og þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst• Evru, fullveldi og auðlindir• Vók-hugmyndafræði og sjálfsmyndapólitík• MeToo, Jeffrey Epstein og valdakerfin• Fjölmiðla, narratíf og „Liberal World Order“• Samsæriskenningar og mörkin milli tortryggni og sannleiksleitarGeta menn sem eru svona ósammála um svo margt fundið sameiginlegan flöt? Og hvað segir það um samtímann?#Spjallið #ESB #Epstein #Vók #Samsæri #StjórnmálFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/20/26 | ![]() Vaxa saman í gegnum stjörnuspekina | Fullorðins | S03E17 | Hera Gísladóttir, heilsumarkþjálfi og stjörnuspekingur, ólst upp úti á landi en fann alltaf að hún væri meiri borgarstelpa. Hún byrjaði snemma að vinna fyrir sér í fiski en segir að stjörnuspeki hafi breytt lífi sínu. Það hafi samt komið frekar óvænt í fangið á henni þegar hún fór með eiginmanni sínum, Ásgeiri Kolbeins, á fund með einum reyndasta stjörnuspekingi landsins. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/19/26 | ![]() Giftist Palestínumanni - síðar kom í ljós að hann var Hamas-liði á Íslandi | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E38 | Í þessu viðtali segir Sigurlín Guðmundsdóttir frá sambandi sínu við palestínskan hælisleitanda sem hún kynntist árið 2022, hjálpaði til Íslands og giftist bæði samkvæmt íslömskum sið og síðar borgaralega.Það sem byrjaði sem ástarsaga breyttist hins vegar í martröð.Eftir árásirnar 7. október segir Sigurlín að eiginmaður hennar hafi fagnað árásunum, og í kjölfarið hafi hann viðurkennt fyrir henni að vera tengdur Hamas – og síðar beinlínis Hamas-liði. Hún segir hann hafa lýst herþjálfun sinni, störfum í göngum Hamas á Gaza og tengslum fjölskyldu sinnar við samtökin.Í viðtalinu lýsir hún einnig hvernig hún telur að fé sem safnað var hér á Íslandi „fyrir fjölskyldu á Gaza“ hafi að hluta ratað til þekkts Hamas-liða, hvernig maðurinn hennar fylgdist með henni, hakkaði síma og tölvu og beitti hana andlegu ofbeldi.Sigurlín segir að fyrrverandi eiginmaður hennar sé enn á Íslandi þrátt fyrir brottvísun, og varar við því sem hún telur vera stærra net Hamas-tengdra einstaklinga hér á landi.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/17/26 | ![]() Matarkarfan og ráðstöfunartekjurnar | Harmageddon | S04E24 | Evrópusinnar á Íslandi gleymdu að taka hlutfall af ráðstöfunartekjun með í reikninginn þegar þeir ætluðu að telja fólki trú um að matarkarfan væri ódýrari í Evrópusambandinu en á Íslandi. Þá virðast þeir einnig hafa gleymt því að afnema þurfi verndartolla á landbúnaðarvörum til þess að lækka verðið á sömu matarkörfu. Það er kannski ekki skrítið að þetta sama fólk telji sig þurfa að kíkja í pakkann.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/16/26 | ![]() „21 árs dóttir mín fékk túrbókrabbamein eftir bólusetningu“ – Hrafn krefst svara | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 | Í þessu viðtali segir Hrafn Margeirsson frá erfiðustu reynslu lífs síns: missi 21 árs dóttur sinnar sem lést úr mjög ágengu ristilkrabbameini árið 2024.Hrafn er sannfærður um að veikindi dóttur sinnar tengist Covid-bólusetningum sem hún fékk árið 2021. Hann rekur þá atburðarás sem varð til þess að hann skipti um skoðun á bólusetningunum, segir frá leit sinni að svörum eftir andlát dótturinnar og gagnrýnir harðlega íslensk heilbrigðisyfirvöld, fjölmiðla og lyfjafyrirtæki.Meðal þess sem rætt er:• Saga 21 árs dóttur Hrafns og veikindi hennar• Hvað svokallað „túrbókrabbamein“ er að mati þeirra sem nota hugtakið• Aukaverkanir Covid-bólusetninga og skráningar þeirra• Umræða um sprautuskaða á Íslandi• Gagnrýni á heilbrigðisyfirvöld og fjölmiðla• Hvers vegna Hrafn telur að mikilvægar spurningar hafi ekki verið rannsakaðarAthugið: Viðmælandinn lýsir hér eigin skoðunum, reynslu og túlkun á atburðum.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/16/26 | ![]() Bakslagið #39 - Eva Þorsteinsdóttir | Jón Þormar, Sverrir Helgason og Eva Þorsteinsdóttir ræða málin. | — | ||||||
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 6/15/26 | ![]() Ivan Kaufmann: „Þau tóku fyrirtækið mitt, mannorðið og líf mitt“ | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E34 | Þátturinn í heild sinni | Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum. Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðskiptasögu.Í viðtalinu fullyrðir hann meðal annars:• Að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi látið þau skilaboð berast til hans að hann ætti að selja Vélfag til íslensks aðila.• Að honum hafi verið gefið til kynna hver ætti að kaupa fyrirtækið.• Að hann hafi neitað að selja fyrirtækið af prinsippástæðum, þrátt fyrir að hann gerði sér grein fyrir að sú ákvörðun gæti haft alvarlegar afleiðingar.• Að honum hafi verið bannað að greiða laun starfsmanna, skatta og launatengd gjöld úr eigin vasa.• Að 40 fjölskyldur á Akureyri hafi misst lífsviðurværi sitt vegna aðgerðanna.• Að hann hafi ítrekað óskað eftir fundi með utanríkisráðherra en aldrei fengið.• Að þýsk stjórnvöld, Evrópusambandið og aðrir erlendir aðilar hafi komist að annarri niðurstöðu en íslensk stjórnvöld um meint tengsl hans við Rússland.• Að ásakanir um tengsl við rússneska leyniþjónustu hafi haft gríðarleg áhrif á líf hans, fjölskyldu og atvinnustarfsemi.Kaufmann hafnar því alfarið að hafa starfað fyrir rússnesk stjórnvöld, rússneska leyniþjónustu eða svokallaðan skuggaflota Rússa og krefst þess að íslensk stjórnvöld leggi fram þau gögn sem hann segir að liggi að baki ásökununum.Viðtalið veitir ítarlega innsýn í mál sem hefur vakið mikla athygli, leitt til dómsmála gegn íslenska ríkinu og haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir Vélfag, starfsfólk fyrirtækisins og Ivan Kaufmann sjálfan.#IvanKaufmann #Vélfag #FrostiLogason #Brotkast #ÞorgerðurKatrín #Akureyri #ÍslandFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/12/26 | ![]() Hvað segja rannsóknir um innflytjendur og afbrot? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E36 | Hafa innflytjendur meiri tilhneigingu til að fremja afbrot? Hvað segja rannsóknir frá Svíþjóð, Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum? Og hvers vegna virðast niðurstöður vera svo ólíkar milli landa?Í þessu viðtali ræðir Frosti Logason við Margréti Valdimarsdóttur, doktor í afbrotafræði við Háskóla Íslands, sem var nýkomin af alþjóðlegri ráðstefnu í Stokkhólmi þar sem fjallað var um tengsl innflytjenda, samþættingar og afbrota.Meðal þess sem rætt er:• Staðan í Svíþjóð og vaxandi vandamál tengd glæpagengjum• Hvers vegna önnur kynslóð innflytjenda virðist standa verr en sú fyrsta í sumum löndum• Umdeild danska rannsóknin á palestínskum flóttamönnum og afkomendum þeirra• Munurinn á Evrópu og Bandaríkjunum þegar kemur að innflytjendum og afbrotum• Hlutverk menningar, félagslegra aðstæðna og velferðarkerfa• „Grooming gangs“ málin í Bretlandi og viðbrögð yfirvalda• Hvort ótti við ásakanir um kynþáttafordóma geti haft áhrif á rannsóknir og stefnumótun• Hvernig afbrotafræðingar nálgast viðkvæm mál sem snerta þjóðerni, uppruna og afbrotMargrét leggur áherslu á mikilvægi þess að skoða gögn, rannsóknir og samhengi frekar en að draga víðtækar ályktanir af einstökum málum eða fyrirsögnum.#Spjallið #FrostiLogason #MargrétValdimarsdóttir #Afbrotafræði #Innflytjendur #Svíþjóð #Danmörk #Bretland #Glæpagengi #SamþættingFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/11/26 | ![]() Ísland þyrfti veikari krónu áður en evran yrði tekin upp | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E35 | Konráð Guðjónsson hagfræðingur ræðir við Frosta Logason um mögulega upptöku evru á Íslandi og segir að staða Íslands sé ólík stöðu flestra ríkja sem hafa gengið inn í evrusvæðið.Í viðtalinu bendir hann á að Ísland sé nú þegar hluti af innri markaði Evrópu í gegnum EES-samninginn og að því sé óvíst hversu mikill viðskiptaábatinn af upptöku evru yrði. Hann telur jafnframt að Ísland myndi líklega þurfa að ganga inn í evrusvæðið á mun veikara gengi en nú er og nefnir að það gæti numið 10–20%.Konráð veltir einnig upp áhrifum á laun, atvinnuleysi, kaupmátt, matvælaverð og lífsgæði á Íslandi. Hann segir að þrátt fyrir hátt verðlag standi Íslendingar mjög sterkt þegar horft er til ráðstöfunartekna, eignamyndunar og almennra lífsgæða.📌 Helstu punktar:• Ísland er þegar á innri markaði ESB í gegnum EES• Takmarkaður viðskiptaávinningur af evru að mati Konráðs• Evran gæti krafist 10–20% veikari krónu• Hvað myndi það þýða fyrir laun og kaupmátt?• Atvinnuleysi og mögulegur samfélagslegur kostnaður• Eru lífsgæði Íslendinga í raun meðal þeirra bestu í heimi?#SpjalliðMeðFrosta #KonráðGuðjónsson #Evran #ESB #EES #Hagfræði #Ísland #Krónan #Kaupmáttur #Atvinnuleysi #EvrópusambandiðFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/10/26 | ![]() Innflytjendamál ógni þjóðaröryggi | Harmageddon | S04E23 | Jonathan Hall, óháður eftirlitsaðili með hryðjuverkalöggjöf í Bretlandi, segir stjórnvöld þurfa að ræða tengsl innflytjendamála og þjóðaröryggis af meiri hreinskilni. Hann varar við að fjandsamleg ríki geti nýtt sér ólöglega innflytjendur og að einstaklingar sem hafa upplifað stríð og áföll geti í sumum tilvikum skapað aukna öryggisáhættu. Ummælin koma í kjölfar hnífaárásar í Belfast sem valdið hefur samfélagslegri spennu og óeirðum. Hall segir að nauðsynlegt sé að viðurkenna að innflytjendamál geti haft áhrif á þjóðaröryggi án þess að það jafngildi andstöðu við innflytjendur eða mannúðarsjónarmið.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/9/26 | ![]() Ivan Kaufmann: Þorgerður Katrín sagði að ég ætti að selja Vélfag Íslendingi | Spjallið | S04E34 | Ivan Kaufmann hefur verið sakaður um að vera „leppur Rússa“ af íslenskum stjórnvöldum.Í þessu ítarlega viðtali við Frosta Logason segir Kaufmann sína hlið á Vélfagsmálinu í fyrsta sinn af fullum þunga. Kaufmann heldur því fram að íslensk stjórnvöld hafi aldrei sýnt honum nein gögn sem réttlættu aðgerðirnar gegn honum, þrátt fyrir að hann hafi lagt fram umfangsmikil gögn um eignarhald sitt og viðskiptasögu. Í viðtalinu fullyrðir hann að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi látið þau skilaboð berast til hans að hann ætti að selja Vélfag til íslensks aðila.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/3/26 | ![]() Þorgerður Katrín: Af hverju vill hún leiða Ísland inn í ESB? | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E33 | Í þessu ítarlega viðtali sest Frosti Logason niður með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til að ræða eitt stærsta pólitíska álitaefni samtímans: mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Þau fara yfir:• Hvort ríkisstjórnin hafi nægilegt umboð til að hefja ESB-vegferðina• Af hverju Þorgerður telur samningsstöðu Íslands sterkari nú en áður• Áhrif Donald Trump, Grænlandsmálsins og breyttrar heimsmyndar á stefnu Íslands• EES-samninginn og hvort hann dugi til framtíðar• Varnir, NATO og samskipti Íslands við Bandaríkin og Evrópu• Krónuna, evruna, vexti og verðbólgu• Ríkisfjármál, veiðigjöld og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar• Hvað þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst raunverulega umViðtalið er hreinskilið, gagnrýnið og fer víða um þau mál sem helst brenna á Íslendingum í umræðunni um framtíð Íslands gagnvart Evrópusambandinu.Hvað finnst þér? Ætti Ísland að halda áfram viðræðum við ESB eða ekki? Skrifaðu þína skoðun í athugasemdirnar.#esb #Evrópusambandið #ÞorgerðurKatrín #FrostiLogason #Brotkast #Ísland #Evrumál #Stjórnmál #NATO #EESFáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/2/26 | ![]() Útilokun Miðflokksins stefna frá Valhöll | Harmageddon | S04E22 | Sjálfstæðisflokkurinn telur að leiðin upp úr sögulegu fylgishruni sé að ráðast gegn Miðflokki og mála hann upp sem óstjórntækan öfgaflokk. Þannig telur flokkurinn sig geta endurheimt stöðu sína sem fjöldahreifing skynsamra hægri manna. Einnig ræðum við í þessum þætti um skynsama stefnu NoBorders samtakanna um að íslenskt velferðarkerfi eigi að bjóða öll velkomin, rekstur Icelandair sem er ekki samkeppnishæfur með dýrustu laun í heimi og uppgjöf framhaldsskóla við að reyna kenna ungu fólki íslenskar heimsbókmenntir. Allt þetta og meira til í Harmageddon þætti dagsins.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 6/1/26 | ![]() Bakslagið #38 - Jakob Bjarnar | Jón Þormar, Helgi Bjarnason og Jakob Bjarnar ræða málin. | — | ||||||
| 5/31/26 | ![]() Segir að Heiða Björg hafi útrýmt heimilisleysi í Reykjavík | Fullorðins | S03E16 | Ragnar Erling Hermannsson hefur barist fyrir málefnum heimilislausra í nokkur ár og hefur háð baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Hann segir okkur sína sögu í þættinum í dag. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 5/29/26 | ![]() Missti báða foreldra sína með stuttu millibili skömmu eftir fermingu | Fullorðins | S03E15 | Ingibjörg Birna Ársælsdóttir missti báða foreldra sína úr krabbameini, þegar hún var sjálf bara táningur. Í þætti dagsins segir hún okkur frá því hvernig hún komst í gegnum árin á eftir og hvað hún gerði til að búa sér til fallegt og farsælt líf. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 5/27/26 | ![]() Sjálfstæðisflokkurinn ekki hægriflokkur | Harmageddon | S04E21 | Kjósendur Sjálfstæðflokksins vakna nú upp við þann veruleika að þeir hafa kosið enn eina vinstristjórnina í Reykjavík. Flokkurinn virtist vera ná sér eftir erfitt gengi undanfarið en nú þarf kraftaverk að gerast í Reykjavík til að kjósendur muni treysta flokknum aftur á næstu árum. Jafnvel grjótharðir, innmúraðir Sjálfstæðismenn þurfa nú að fara horfast í augu við þá staðreynd að forysta flokksins vill miklu frekar geta skálað í hvítvíni með RÚV fólkinu, sem hún þráir viðurkenningu frá, heldur en að halda á lofti einhverjum hægri áherslum í pólitík.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 5/27/26 | ![]() Ævintýraprinsinn Björgvin Halldórsson | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E32 | Jakob Frímann Magnússon er nýjasti gestur Spjallsins með Frosta Logasyni.Hann fer hér yfir kynni sín af Björgvini Halldórsyni heitnum en þeir félagar tengdust vinaböndum í gegnum tónlistina og spannaði sú vinátta marga áratugi. Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 5/25/26 | ![]() Bjórkast #37 - Frosti Sigurjónsson | Jón Þormar, Helgi Bjarnason, Sverrir Helgason og Frosti Sigurjónsson ræða málin. | — | ||||||
| 5/22/26 | ![]() Sjálfstæðisflokkurinn ekki kosinn til að vinna til vinstri | Harmageddon | S04E20 | Þrátt fyrir að enginn málefnaleg rök liggi fyrir því, þá er Sjálfstæðisflokkurinn leitandi logandi ljósi af ástæðum til að vinna ekki með Miðflokki. Enginn kjósandi Sjálfstæðisflokks ber þá ósk í brjósti að flokkurinn vinni til vinstri og Viðreisn hefur ekkert að bjóða flokknum annað en ágreining um nokkur af helstu málefnum kosninganna. Samt hefur Sjálfstæðisflokkurinn enn ekki hafið viðræður við Miðflokkinn. Við spáum því að framtíð Sjálfstæðisflokksins sé ekki jafn björt og fylgi þeirra í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum gefur til kynna.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
| 5/20/26 | ![]() Brottfararstöð nauðsynleg | Spjallið með Frosta Logasyni | S04E31 | Dómsmálaráðherra Íslands, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, er gestur Frosta Logasonar í ítarlegu og umdeildu viðtali um helstu hitamál íslenskra stjórnmála.Í viðtalinu ræðir Þorbjörg meðal annars um hertari stefnu ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, fyrirhugaða brottfararstöð fyrir þá sem hafa fengið synjun um vernd, skipulagða brotastarfsemi, netveðmál, öryggi samfélagsins og stöðu réttarkerfisins.Einnig er rætt um ESB-umræðuna, Schengen-samstarfið, vændiskaup og jafnvægið milli frelsis og öryggis í nútímasamfélagi.Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/ | — | ||||||
Showing 25 of 1385
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart Positions
10 placements across 9 markets.
Chart Positions
10 placements across 9 markets.




















