Þar sem pappírsslóðin endar: Börn voru vistuð í Bakkakoti í trássi við lög 2005
From Þetta helst by RÚV
June 2, 2026 · 17 min · Episode 695
About this episode
The episode discusses the illegal placement of children in the foster home Bakkakot in 2005 and the subsequent legal implications.
Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess frá sveitarfélaginu að taka að sér fósturbörn. Þetta var brot á nýjum barnaverndarlögum sem samþykkt voru árið 2004. Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn. Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem fréttastofa fékk frá safninu. Í gögnunum er að finna síðustu fyrirliggjandi samskipti sveitarfélagsins við Þóru í Bakkakoti um fósturheimilið. Rætt er við lögmann Bakkakotsmannanna, Bjarka Heiðar Bjarnason um þessi gögn og stöðuna á Bakkakotsmálinu í dag eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kveiks um ofbeldið á heimilinu í febrúar. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
People in this episode
Host: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Guest: Bjarki Heiðar Bjarnason
Topics covered
- child welfare
- foster care
- legal issues
- Bakkakot
- Icelandic law
- social services
Keywords
- Bakkakot
- foster care
- Iceland
- child protection laws
- Þóra Bernódussdóttir
- Bjarki Heiðar Bjarnason
- Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu
- Þjóðskjalasafnið
Mentioned in this episode
Organizations: Bakkakot, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, Þjóðskjalasafnið
More episodes of Þetta helst
- Hyllir undir lok stærstu mansalsrannsóknar sögunnar · June 12, 2026 · 15 min
- Curaçao og fámennar þjóðir á stórmótum · June 11, 2026 · 16 min
- Kaldvík í brimróti á Austfjörðum · June 10, 2026 · 14 min
- Er hægt að treysta gervigreindinni í samtali um ESB? · June 9, 2026 · 15 min
- Samhengi uppsagna og 10 milljarða arðgreiðslu Kviku banka · June 8, 2026 · 17 min
- Vaxandi skuldir fyrirtækja í byggingastarfsemi · June 5, 2026 · 15 min
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Þetta helst podcast page.