Gagnrýnin á eftirlitsleysi með íslenskum fósturheimilum

Gagnrýnin á eftirlitsleysi með íslenskum fósturheimilum

From Þetta helst by RÚV

April 22, 2026 · 16 min · Episode 670

About this episode

Umræða um skort á eftirliti með íslenskum fósturheimilum og áhrif þess á börn.

Umræðan um fósturheimili sem hefur átt sér stað í samfélaginu síðastliðna tvo mánuði hefur leitt til þess að börn sem hafa dvalið á slíkum heimilum hafa gagnrýnt skort á eftirliti hjá barnaverndaryfirvöldum. Þetta á bæði við um þá sem dvöldu á fósturheimilinu Bakkakoti á Suðurlandi, sem fréttaskýringaþátturinn Kveikur sagði frá í byrjun febrúar, og eins um fólk sem dvaldi á öðrum heimilum eins og Gauksstöðum í Garði. Kona sem bjó á fósturheimilinu á Gauksstöðum sem unglingur segir að eitt af því sem henni svíði hvað mest sé að Barnaverndin í Reykjavík hlustaði ekki á kvartanir hennar. Hún segir líka að annað sem henni svíði sé að íbúar í Garðinum hafi ekki brugðist við þrátt fyrir að margir í nærsamfélaginu hafi vitað af því að á heimilinu hafi ríkt ógnarstjórn. Móðir drengs sem bjó á Gauksstöðum segir sömu sögu um barnaverndina á Húsavík sem og barnaverndarstofu. Eftirlit með fósturheimilum á Íslandi er eitt af því sem til stendur að skoða sérstaklega í fyrirhugaðri rannsóknarnefnd um fósturheimili, segir Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu. Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson

People in this episode

Host: Ingi Freyr Vilhjálmsson

Topics covered

  • fósturheimili
  • barnavernd
  • eftirlit
  • skortur á eftirliti
  • samfélagsumræða
  • rannsóknarnefnd

Keywords

  • fósturheimili
  • barnavernd
  • eftirlit
  • Gauksstöðum
  • Bakkakoti
  • Páll Þórhallsson
  • Kveikur
  • skortur
  • ógnarstjórn

Mentioned in this episode

Organizations: Barnaverndin, Barnaverndarstofu, Kveikur

Places: Gauksstöðum, Garði, Húsavík, Suðurlandi, Reykjavík, Íslandi

More episodes of Þetta helst

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Þetta helst podcast page.