
Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Most discussed topics
Brands & references
Total monthly reach
Estimated from 2 chart positions in 2 markets.
By chart position
- 🇸🇪SE · Entertainment News#1621K to 10K
- 🇮🇸IS · Entertainment News#930K to 100K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
16K to 55K🎙 Weekly cadence·127 episodes·Last published 5mo ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
31K to 110K🇮🇸91%🇸🇪9% - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
9.3K to 33K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
On the show
From 1 epsHost
Recent guests
Recent episodes
Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“
Jan 23, 2026
55m 39s
Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur
Jan 15, 2026
Unknown duration
Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“
Jan 9, 2026
Unknown duration
Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked
Dec 31, 2025
Unknown duration
Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026
Dec 25, 2025
Unknown duration
Social Links & Contact
Official channels & resources
Official Website
Login
RSS Feed
Login
| Date | Episode | Topics | Guests | Brands | Places | Keywords | Sponsor | Length | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1/23/26 | ![]() Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“✨ | sexual violencedomestic abuse+3 | Saga Dröfn Haraldsdóttir | DV | — | sexual violencedomestic abuse+4 | — | 55m 39s | |
| 1/15/26 | ![]() Linda Pé - Lykillinn á bak við varanlegan árangur | Hvers vegna ná svona margir aldrei varanlegum árangri, þrátt fyrir góð áform og áramótaheit? Í Fókus, viðtalsþætti DV, er masterslífsþjálfinn og fyrrverandi fegurðardrottningin Linda Pétursdóttir – betur þekkt sem Linda Pé – gestur vikunnar og fer yfir hvað raunverulega þarf að breytast til að markmið náist. Hún segir vandann ekki liggja í skorti á aga eða þekkingu, heldur í hugsunum okkar og sjálfsmynd.Linda rekur LMLP-prógrammið og Lífsþjálfaskólann og heldur einnig úti Podcastinu með Lindu Pé. Nú er hún nýlega farin af stað með fimm daga frítt netnámskeið þar sem hún kennir svokallaðan árangurskóða – aðferðafræði sem hún segir skila varanlegum breytingum, ekki skammtímalausnum. Í viðtalinu ræðir Linda meðal annars sjálfsmynd, fjármál, lífsstíl, eigin reynslu af gjaldþroti og endurreisn og hvers vegna árangur er aldrei tilviljun. | — | ||||||
| 1/9/26 | ![]() Kristín Þóra á rauðu ljósi: „Það var engin leið til baka án þess fá faglega aðstoð“ | Leikkonan Kristín Þóra Haraldsdóttir hefur lengi verið þekkt fyrir mikinn metnað, kraft og fjölbreytt hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Undanfarin ár hefur hún hins vegar ekki aðeins tekist á við krefjandi verkefni í starfi, heldur einnig farið í gegnum persónulegt ferðalag. Fyrir um sex árum lenti Kristín í kulnun eftir langvarandi álag, sjálfsniðurrif og stöðuga streitu, sem að lokum leiddi til þess að taugakerfið hrundi og líkaminn sagði stopp.Í Fókus, viðtalsþætti DV, opnar Kristín Þóra sig um kulnunina, aðdragandann að henni og það afgerandi augnablik þegar hún áttaði sig á að hún þyrfti að fá faglega aðstoð. Hún ræðir einnig um muninn á heilbrigðum metnaði og sjálfsniðurrifi, hvernig streita getur smám saman tekið yfir lífið og hversu mikilvægt það er að greina á milli kulnunar og annarra andlegra veikinda. Samhliða því fjallar hún um annasamt síðasta ár, ný hlutverk í þáttunum Dönsku konunni á RÚV og Heimaey í Sjónvarpi Símans, sýningu hennar Á rauðu ljósi á stóra sviðinu í Þjóðleikhúsinu sem hefur slegið rækilega í gegn - og hvernig hún tekst í dag á við álag með meiri mýkt, forgangsröðun og stuðningi fjölskyldunnar. | — | ||||||
| 12/31/25 | ![]() Sigga Ózk: Frá Söngvakeppninni til Wicked | Söng- og leikkonan Sigga Ózk, Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Sigga skaust fram á sjónarsviðið árið 2023 þegar hún tók fyrst þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hún tók aftur þátt ári seinna og komst áfram í úrslit með laginu Um allan alheiminn.Hún hefur einnig getið sér gott orð sem leikkona og talsetti hlutverk Glindu í kvikmyndunum Wicked og Wicked: For Good, sem Ariana Grande leikur.Við ræddum við Siggu Ózk um glæstan feril hennar, ævintýrin að taka þátt í söngvakeppninni og tækifærið að fá að talsetja svona kröftugt hlutverk í stórmynd. Hún opnar sig einnig um æskuna og hvernig hafi verið að alast upp með frægan föður og svo margt fleira. | — | ||||||
| 12/25/25 | ![]() Áramótaspá Ellýjar Ármanns fyrir 2026 | Spákonan og flugfreyjan Ellý Ármanns er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, og jafnframt mætt þriðja árið í röð í sérstakan áramótaþátt þar sem hún spáir fyrir þekktum einstaklingum, íslensku samfélagi og öllu þar á milli. Það kom margt áhugavert fram í þættinum, en samkvæmt Ellý verða miklar breytingar í stjórnmálum, meðal annars mun ný ríkisstjórn taka við í haust og nefnir hún einn flokk sem verður við völd.Það er einnig hægt að horfa á þáttinn á DV.is | — | ||||||
| 12/19/25 | ![]() Margrét Sól: Sagði upp verkfræðistarfinu hjá Össuri til að elta drauminn | Margrét Sól Ragnarsdóttir dúxaði þegar hún útskrifaðist með mastersgráðu í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík og tryggði sér draumastarf hjá alþjóðlega tæknifyrirtækinu Össuri. Hún virtist vera á „réttu leiðinni“ en innra með henni var eitthvað sem togaði hana í aðra átt. Í haust tók hún þá stóra ákvörðun um að segja upp starfi sínu og stökkva út í óvissuna til að verða listakona. Margrét er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún ræðir um námsferilinn, vinnuna, listina, einhverfugreininguna sem hjálpaði henni að skilja sig betur og spennandi framtíð í þættinum sem má hlusta á Spotify og öllum helstu hlaðvarpsveitum. | — | ||||||
| 12/12/25 | ![]() Anna Claessen: Frá kulnun í kraft og ástin sem bankaði óvænt upp á | Markþjálfinn, einkaþjálfarinn og skemmtikrafturinn Anna Claessen er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar fer hún opinskátt yfir kulnunina sem hún lenti í árið 2018, hvernig líkaminn reyndi að stoppa hana en hún hlustaði ekki – og hvers vegna margir hunsa þessi skilaboð. Hún talar einnig um fordóma, sérstaklega eldri kynslóðarinnar, fyrir kulnun, álagið sem fylgir nútímalífi og hvers vegna svokölluð örhlé geti skipt sköpum, sérstaklega í annasömum desembermánuði. Auk þess ræðir Anna um ástina, fjölskyldulífið og erfiða reynslu þegar sonur hennar greindist með flogaveiki aðeins eins og hálfs árs. Þetta er einlægt og kraftmikið viðtal þar sem Anna leiðir hlustendur í gegnum erfiða og bjarta tíma. | — | ||||||
| 12/4/25 | ![]() Kristinn Aron: Veðmálafíkn tók yfir líf mitt | Þjálfarinn og fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Kristinn Aron Hjartarson, sem verður 39 ára í desember, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Þar ræðir hann opinskátt um veðmálafíkn sem tók yfir líf hans um árabil, meðferðina sem varð vendipunktur árið 2020 og hvernig hann hefur síðan lifað edrú lífi — bæði frá veðmálum og áfengi.Kristinn lýsir spilafíkn sem manískri þráhyggju sem fylgir mikil skömm, lygar og fjárhagslegt hrun. Sjálfsvígstíðni meðal spilafíkla er með þeirri hæstu í heiminum.Vandamálið er líka hvað þetta er samþykkt. Kristinn bendir á að veðmál séu orðin allsráðandi í íslensku samfélagi; rapparar, útvarpsmenn, hlaðvarpsstjórnendur, áhrifavaldar og fleiri þekktir menn og fyrirmyndir ungra drengja eru að auglýsa veðmál í miklum mæli.Í viðtalinu gagnrýnir Kristinn slíka aðila en líka fyrirtækin sem styrkja þessa menn samhliða veðmálafyrirtækjunum. Hann segir að það sé tvennt í stöðunni að hans mati; að annað hvort loka alfarið á veðmálasíður eða opna markaðinn undir ströngu regluverki og nota skatttekjurnar í öflugt meðferðarúrræði. | — | ||||||
| 11/27/25 | ![]() Hildur: „Í febrúar klessti ég á vegg og fór í kulnun í þriðja skiptið á ferlinum“ | Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir sá fyrir sér að árið 2025 yrði mikið tónlistarár, hún var að gefa út fyrstu sólóplötuna sína í janúar og ætlaði að vera óstöðvandi. En síðan lenti hún harkalega á vegg en ætlaði ekki að trúa því að hún væri að lenda í kulnum í þriðja skiptið. Hildur er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir um kulnun, ADHD, hvernig hugleiðsla breytti öllu, það sem hún hefur lært um taugakerfið og svo margt annað. | — | ||||||
| 11/20/25 | ![]() Linda Sæberg - Fann sig í spiritúalisma eftir krabbameinsbaráttuna | Linda Sæberg hefur undanfarin ár gengið í gegnum dimma dali en með aðdáunarverðum hætti tekist á við öll vandamál með bjartsýni og von að leiðarljósi. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún opnar sig um baráttuna við brjóstakrabbamein, áfallasögu sem mótaði líf hennar í tvo áratugi og þá djúpu umbreytingu sem hún gekk í gegnum þegar hún fann styrk í andlegum málum og spiritúalisma. Í dag talar hún opinskátt um óttann, vonina, bataferlið og nýtt líf – sem leiddi hana að ástinni, fjölskyldu og draumaheimili sem hún segir að alheimurinn hafi fært henni þegar hún var loksins tilbúin. | — | ||||||
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 11/13/25 | ![]() Sylvía Rún: Lífið með OCD | Körfuboltakonan Sylvía Rún Hálfdanardóttir greindist með áráttu- og þráhyggjuröskun (OCD) þegar hún var sautján ára gömul. Greiningin opnaði augu hennar fyrir ýmsu úr æsku hennar sem var vísbending um hvað var að hrjá hana. Um tíma var hún orðin fárveik en blessunarlega leitaði hún sér hjálpar og tókst með baráttuandann að vopni að komast í gegnum þetta skeið. Í dag er hún á góðum stað og er með ýmis tæki og tól til þess að glíma við röskunina.Sylvía er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún ræðir opinskátt um hvernig líf hennar breyttist í kjölfar greiningarinnar, fyrstu einkenni, þegar hún varð það lasin að hún þurfti að hætta að æfa og vinna, og einnig hvernig baráttuandinn frá körfunni kom henni í gegnum erfiðasta kaflann. Hún er mætt aftur á völlinn með Ármanni og deilir lífi sínu með OCD á TikTok. | — | ||||||
| 11/6/25 | ![]() Gunnar Dan: Við erum ekki ein | Gunnar Dan, rithöfundur og verslunarstjóri Handverkshússins, trúir því staðfastlega að mannkynið sé ekki eitt í alheiminum. Gunnar var að gefa út bókina UFO101 og er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræðir um reglulegar heimsóknir geimvera til jarðar – líka til Íslands. Hann segir frá mismunandi tegundum geimvera, meintum samningum þeirra við stórveldi og íslensku brottnámstilfelli. Gunnar lýsir jafnframt eigin andlegri reynslu sem hann telur tengjast vitundarvakningu mannkynsins og yfirnáttúrulegum skilaboðum utan úr geimnum. | — | ||||||
| 10/31/25 | ![]() Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón: Fólk hefur tapað tugum milljóna á þessum svindlum | Rannsóknarlögreglumaðurinn Guðjón Rúnar Sveinsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hann ræddi um ýmsar tegundir netsvindls í þættinum, hvað skal varast og hvað sé gott að vita. Hann hvetur fólk til að vera gagnrýnið en svindlin eru sífellt að verða þróaðri og fágaðri. Það eru heilu hóparnir sem vinna við að hafa af öðrum fé og þó sumir hópar séu viðkvæmari en aðrir þá geta allir lent í þessu. Hann nefnir dæmi um að einstaklingar hafa tapað tugum milljóna í slíkum svindlum og fyrirtæki yfir hundrað milljónir, bara á þessu ári. | — | ||||||
| 10/23/25 | ![]() Paradísa: Lífið tók stakkaskiptum þegar hún hryggbrotnað | Tónlistarkonan Paradísa er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún heitir fullu nafni Dísa Dungal og er fyrrverandi fegurðardrottning og íþróttafræðingur.Líf Paradísu snerist á hvolf þegar hún hryggbrotnaði árið 2022. Það hafði gríðarleg áhrif á hana, ekki bara líkamleg heldur einnig andleg en Paradísu fannst fótunum kippt undan henni. Hún gat ekki lengur sinnt starfi sínu né stundað áhugamál sín, hún var týnd þar til hún fann nýjan tilgang; að semja tónlist. Hún tók upp listamannanafnið Paradísa og hefur gefið út þrjú lög og er plata væntanleg þann 8. nóvember næstkomandi. Paradísa ræðir einnig um þátttöku sína í fegurðarsamkeppnum í þættinum, en hún segist bæði hafa góða og slæma reynslu af slíkum keppnum. Hún segist hafa séð og upplifað alls konar óviðeigandi hegðun gagnvart saklausum ungum keppendum.Allt þetta og miklu meira í þætti vikunnar. | — | ||||||
| 10/16/25 | ![]() Hanna Birna: Var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS | Hanna Birna Valdimarsdóttir, 33 ára, var læknisfræðileg ráðgáta í mörg ár áður en hún var greind með POTS-heilkenni. Hún er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Hanna Birna fékk fyrstu einkennin fyrir rúmlega áratug síðan þegar hún gekk með dóttur sína. Einkennin gerðu aftur vart við sig á meðgöngu sonar hennar en mætti Hanna Birna dómhörku í heilbrigðiskerfinu og var spurð hvort hún væri „alltaf svona vælin“ þegar hún lýsti áhyggjum sínum. Nokkrum dögum eftir settan dag fékk Hanna Birna blóðtappa í lungun, sonurinn var tekinn með bráðakeisara og næsta sem hún man er að vakna í öndunarvél. Það liðu sex ár þar til hún fékk loksins greiningu eftir mikil veikindi. Það var viss léttir að fá loksins útskýringu á því sem var að hrjá hana, en þetta markaði einnig upphaf krefjandi baráttu, bæði við sjúkdóminn og kerfið sem á að styðja hana en þann 1. október síðastliðinn hættu Sjúkratryggingar Íslands að niðurgreiða vökvagjöf til POTS-sjúklinga.Undirskriftarlistinn: Áskorun til heilbrigðisyfirvalda að endurskoða ákvörðun um stöðvun niðurgreiðslna vökvagjafa v. POTS https://island.is/undirskriftalistar/e36c2fea-40fd-405a-b836-64143cf347b3 | — | ||||||
| 10/9/25 | ![]() Viktoría Rós - Þurfti að horfast í augu við áföllin til að byggja sig upp á ný | Markaðsstjórinn og áhrifavaldurinn Viktoría Rós Jóhannsdóttir opnar sig í viðtalsþættinum Fókus og segir frá átakanlegri lífsreynslu sem mótaði hana. Þrátt fyrir venjulega æsku varð hún fyrir kynferðisofbeldi sem barn af hendi barnapíu, áfalli sem hún vann ekki úr fyrr en mörgum árum síðar. Í kjölfarið fylgdu erfið sambönd, áfengisvandamál og flókin fjölskyldumál varðandi faðerni sonar hennar, en í dag hefur Viktoría snúið lífi sínu við með sjálfsvinnu og stuðningi AA. Hún ræðir fortíðina, baráttuna við fíknina og hvernig hún byggði sig upp á ný í einlægu og áhrifaríku viðtali. | — | ||||||
| 10/2/25 | ![]() Íþróttakonan Hekla Sif: Baráttan og bataferlið við átröskun | Hekla, 25 ára, var um árabil afreksíþróttakona í frjálsum íþróttum og bjó um tíma í Texas þar sem hún lagði nám við West Texas A&M háskólann og keppti fyrir hönd skólaliðsins. Þegar hún var átján ára gömul vildi hún ná lengra í greininni og ákvað að kaupa matarplan frá fitness þjálfara. Hún myndaði fljótlega óheilbrigt samband við mat og þróaði með sér átröskun sem tók yfir líf hennar. Hún hefur verið í bata síðan í byrjun árs og líður vel. Hún vill segja sína sögu til að vekja athygli á þessum falda en því miður allt of algenga sjúkdómi, hún barðist í hljóði í mörg ár og veit að það eru fleiri í sömu stöðu.Hekla hefur verið að vekja athygli á TikTok fyrir að ræða hreinskilið og hispurslaust um baráttu sína og bataferli. Hún sýnir frá því sem hún borðar í bata og minnir áhorfendur alltaf á að matur er bensín, nauðsynlegur til að halda manni gangandi. | — | ||||||
| 9/26/25 | ![]() Katla Hreiðars: Reksturinn, barnalánið og ástin | Athafnakonan Katla Hreiðarsdóttir, betur þekkt sem Katla í Systur og makar, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fyrir rúmlega ári síðan var Katla alvarlega að íhuga að hætta eftir sautján ára rekstur. Það voru erfiðir tímar, bróðir hennar var að berjast við illvígt krabbamein og hún var ólétt af þriðja barninu á stuttum tíma. Reksturinn var líka í lægð en það hefur verið krefjandi undanfarin ár að halda úti framleiðslu á Íslandi. En Katla vildi ekki gefast strax upp og þakkar hún Hrólfi bróður sínum heitnum fyrir að hafa hvatt hana áfram og minnt hana á hvað sé mikilvægt í þessu lífi. | — | ||||||
| 9/18/25 | ![]() Guðrún Sørtveit: „Það hefur alltaf verið rosalega sterkt í mér að verða mamma“ | Guðrún Helga Sørtveit, áhrifavaldur og eigandi fyrirtækisins Fyrsta árið, er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Í þættinum opnar Guðrún sig um móðurhlutverkið, þegar hún fékk utanlegsfóstur sem varð til þess að fjarlægja þurfti annan eggjastokkinn og gleðina og kvíðann sem hún upplifði þegar hún varð fljótlega aftur ólétt. Hún segir frá báðum meðgöngunum og fæðingunum og ræðir einnig einlæg um fæðingarþunglyndi, samfélagsmiðla og margt fleira. | — | ||||||
| 9/11/25 | ![]() Kara lifði af martröð á götunni: „Ég hugsaði: Hann er að fara að drepa mig“ | Við vörum við efnisinnihaldi þáttarins, fjallað er um ofbeldi, kynferðisofbeldi, fíkniefnaneyslu og sjálfsvíg. Kokkurinn og hnefaleikastjarnan Kara Guðmundsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Saga Köru er lituð af áföllum og erfiðleikum, en þetta er líka sigursaga og vonarsaga fyrir fólk í svipuðum aðstæðum og ástvini þeirra. | — | ||||||
| 9/4/25 | ![]() Steffý Þórólfs: Hafði áhyggjur að áreitið myndi hafa áhrif á ófæddan soninn | Áhrifavaldurinn Steffý Þórólfsdóttir upplifði erfiða tíma á sinni fyrstu meðgöngu. Hún var illa stödd andlega, meðal annars vegna áreitis og eineltis, og hafði miklar áhyggjur af því hvort að það myndi hafa áhrif á frumburðinn í móðurkviðnum. Hún hefur fjallað um þessa reynslu sína á samfélagsmiðlum, svo athygli hefur vakið, og segir að tilgangurinn hafi verið sá að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi þess að huga að andlegri heilsu mæðra.Steffý er gestur í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún fer ítarlega yfir þetta tímabil, hvernig það byrjaði og þróaðist. Hún deilir sinni upplifun og áhrifunum sem þetta hafði á hana. Hún þakkar sérstaklega Píeta samtökunum og Bjarkarhlíð fyrir hjálpina og stuðninginn. | — | ||||||
| 8/28/25 | ![]() Hafdís Björg: „Ég týndi mér alveg“ | Einkaþjálfarinn, athafnakonan og áhrifavaldurinn Hafdís Björg Kristjánsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV. Fókus snýr aftur eftir sumarfrí og í fyrsta þætti ræðir Hafdís einlæg um að finna sig eftir erfiðleika, vinkonumissi og hvernig er að verða fyrir netníði þegar hún var á dimmum stað.Hún opnar sig einnig um æskuna, að verða móðir ung og fæðingarþunglyndi. | — | ||||||
| 5/30/25 | ![]() Þórdís Björk: Móðurhlutverkið, ferillinn og ADHD | Söng- og leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir ræðir um mörgu hliðar móðurhlutverksins, tónlistar- og leiklistaferilinn, harkið og gamanið, ástina og lífið með ADHD í Fókus, viðtalsþætti DV. | — | ||||||
| 5/22/25 | ![]() Helena Reynis: „Mér datt ekki í hug að ég gæti lent í ofbeldissambandi.“ | Myndlistarkonan Helena Reynisdóttir flutti heim til Íslands frá Berlín eftir um fimm ára dvöl. Flutningurinn markaði ákveðin tímamót í lífi hennar. Þá var hún nýkomin úr fimm ára sambandi þar sem hún var beitt andlegu ofbeldi. Hún ákvað nýlega að stíga fram í myndbandi á TikTok og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Andlegt ofbeldi er gjarnan falið, tabú að tala um og mikil skömm sem getur fylgt því, en þó hún hafi ekki verið með líkamlega áverka þá var hún undir lok sambandsins búin að missa mikla þyngd, byrjuð að missa hárið og komin með útbrot um líkamann. Orkan nánast engin en erfiðast var að horfast í augu við að hún væri í ofbeldissambandi. Helena hefur alla tíð verið sjálfsörugg með sterkt bakland og datt aldrei í hug að hún gæti lent í þessum aðstæðum. En það er einmitt ástæðan fyrir því að hún ákvað að stíga fram og segja sögu sína í Fókus, viðtalsþætti DV. Hún vill vekja athygli á einkennum andlegs ofbeldis og vonandi hjálpa einhverjum í sömu stöðu. | — | ||||||
| 5/16/25 | ![]() Hermann um skilnaðinn og svikin: „Hann laug að ég væri dáinn“ | Hárgreiðslumeistarinn Hermann Óli Bachmann Ólafsson er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV.Hann ræðir um hvernig það var að alast upp sem samkynhneigður strákur þegar hommi var álitið niðrandi og ljótt orð. Hann ræðir einnig um hárgreiðsluferilinn og fyrirtækjareksturinn, sem hefur verið eins og rússíbani á köflum.Hermann opnar sig í einlægur um persónuleg mál, eins og barneignaferlið sem breyttist í þriggja ára martröð og skilnaðinn sem lífgaði hann við. Hann segir að það sem gerði útslagið var þegar hann heyrði að þáverandi eiginmaður hans hafði sagt öðrum karlmönnum að Hermann væri látinn til að auðvelda framhjáhaldið. | — | ||||||
Showing 25 of 127
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart Positions
3 placements across 2 markets.
Chart Positions
3 placements across 2 markets.

























