
LEGVARPIÐ // Áslaug Hauksdóttir
From Landspítali hlaðvarp by Stefán Hrafn Hagalín
April 18, 2024 · 59 min · Episode 82
About this episode
Áslaug Hauksdóttir discusses her diverse career and contributions to midwifery in Iceland.
Ljósmæðurnar Stefanía Ósk og Sunna María ræða um ljósmæðratengd málefni líðandi stundar í Legvarpinu. Þátturinn er hluti af syrpunni “Ljósmæður líta um öxl” sem er unnin í samstarfi við Ljósmæðrafélag Íslands, þar sem rætt er við reynslubolta við starfslok. Gestur dagsins er Áslaug Hauksdóttir, ljósmóðir, baráttukona og kvenskörungur með meiru. Áslaug segir frá fjölbreyttum starfsferli sem endurspeglar forvitni og þörf til að taka þátt í framþróun og breytingum í þágu kvenna. Áslaug hefur sinnt ljósmæðrastörfum erlendis og í flestum landshornum hérlendis, þar með talið á Landspítala þar sem Áslaug tók til dæmis þátt í uppbyggingu og starfsemi glasafrjóvgunardeildar. Segja má að Áslaug sé mikill brautryðjandi á sviði ljósmóðurfræða á Íslandi og tók hún stóran þátt í að innleiða og festa í sessi vatnsfæðingar sem og heimafæðingar hér á landi. Komið með inn í skemmtilegar sögur allt frá símhringingu í útvarpsþátt yfir í fundi við Landlækna, þar sem réttlætiskennd og baráttuandi fyrir kvennamálum skín í gegn.
People in this episode
Guest: Áslaug Hauksdóttir
Topics covered
- ljósmæðratengd málefni
- framþróun
- kvennamál
- vatnsfæðingar
- heimafæðingar
Keywords
- ljósmóðir
- baráttukona
- framþróun
- kvennskapur
More episodes of Landspítali hlaðvarp
- Legvarpið // Trans fólk og barneignir með Alexander · February 9, 2026 · 42 min
- LEGVARPIÐ // Anna Eðvaldsdóttir · May 6, 2025 · 1h 26m
- LEGVARPIÐ // Tvíburar og sitjandi fæðing með Evu Sigrúnu · April 2, 2025 · 1h 22m
- Dagáll læknanemans // Lungnaháþrýstingur · November 1, 2024 · 60 min
- Dagáll læknanemans // Lungnakrabbamein · October 11, 2024 · 1h 5m
- Dagáll læknanemans // Klínísk rökleiðsla - Ungur maður með fyrirferð á hálsi, svitaköst og þyngdartap. · October 4, 2024 · 56 min
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Landspítali hlaðvarp podcast page.