Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Most discussed topics
Brands & references
Total monthly reach
Estimated from 1 chart position in 1 market.
By chart position
- 🇮🇸IS · Society & Culture#107500 to 3K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
150 to 900🎙 Daily cadence·563 episodes·Last published 2d ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
500 to 3K🇮🇸100% - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
200 to 1.2K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
On the show
From 10 epsHosts
Recent guests
Recent episodes
Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir
Jun 26, 2026
Unknown duration
Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna
Jun 25, 2026
Unknown duration
Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann
Jun 24, 2026
Unknown duration
Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu
Jun 23, 2026
Unknown duration
Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar
Jun 22, 2026
Unknown duration
Social Links & Contact
Official channels & resources
Official Website
Login
RSS Feed
Login
| Date | Episode | Topics | Guests | Brands | Places | Keywords | Sponsor | Length | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 6/26/26 | Gunnar Helgason föstudagsgestur og matarspjall um útimáltíðir | Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn, rithöfundurinn og leikstjórinn Gunnar Helgason. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar úr Hvassaleytinu í Vogahverfið, hvar hann eyddi öllum stundum í fótbolta eða á skíðum. Hvenær leiklistin kom inn í líf hans og svo bókaskrifin og leikstjórnin, en Gunnar hefur leikstýrt leiksýningum víða um lönd og skrifað um þrjátíu bækur. Nú síðast var hann að auglýsa á samfélagsmiðlum eftir frægum „Bo“-frösum sem verða notaðir á minningartónleikum um Björgvin Halldórsson í haust. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag veltum við því fyrir okkur hvort og hvernig er hægt að sitja úti, jafnvel heilt kvöld á Íslandi og hvað sé best að borða við slíkar aðstæður? Tónlistin í þættinum: Óbyggðirnar kalla / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Hringd’í mömmu / Stefán Hilmarsson (Yeary, Mille & Green, texti Stefán Hilmarsson) Póstnúmer / Flott (feat.KR!$$!) (Vigdís Hafliðadóttir og Regnhildur Veigarsdóttir, texti Vigdís Hafliðadóttir og Arnór Björnsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/25/26 | Svava í Hugarhlýju, Hveragerði 80 ára og Jónatan um Ragga Bjarna | Svava Bjarnadóttir sagði upp vinnunni sinni sem sjúkraliði á geðsviði og opnaði lítinn stað þar sem allt sem viðkemur mannlegri sjálfsrækt er í fyrirrúmi. Hún er sjálf með ýmis námskeið og er nýbúin að kaupa slatta af hengirúmum sem hún notar í hugleiðslur og og stundir fyrir hópa sem vilja slaka á og njóta. Staðurinn er í Hveragerði og við hittum Svövu þar, en hún er andlegur einkaþjálfari, reikimeistari og geðsjúkraliði. Og við stöldruðum lengur í Hveragerði en það eru merk tímamót þegar bæjarfélag fagnar 80 ára afmæli og Hveragerði fagnar einmitt slíku afmæli allt þetta ár og dagskráin er glæsileg. Við hittum menningar-, atvinnu- og markaðsfulltrúa bæjarins, Sigríði Hjálmarsdóttur, en hún hóf störf fyrir þremur árum og á þeim tíma hafa þrír bæjarstjórar vermt bæjarstjórastólinn. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Ragnar Bjarnason, eða okkar eina sanna Ragga Bjarna, sem var auðvitað einn ástsælasti dægurlagasöngvari íslenskrar tónlistarsögu. Tónlistin í þættinum: Ég skal bíða þín / Helgi Björns og reiðmenn vindanna (Micheal Legrand, texti Hjördís Morthens) Hveragerði / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) Vertu ekki að horfa svona alltaf á mig / Ragnar Bjarnason (Monaco, McCarthy & Johnson, texti Jón Sigurðsson) Þannig týnist tíminn / Ragnar Bjarnason og Lay Low (Bjartmar Guðlaugsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/24/26 | Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann | Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/23/26 | Jensína Reykvíkingur ársins, Branislav Bédi og veðurspjall um hitabylgju í Evrópu | Reykvíkingur ársins var kynntur á dögunum, hann er valinn út frá tilnefningum, einstaklingar sem hafa með háttsemi sinni eða atferli verið til fyrirmyndar á einhvern hátt. Eftir yfirferð á tilnefningum var tekin ákvörðun um að veita Jensínu Eddu Hermannsdóttur titilinn, en hún er þekkt fyrir framlag sitt til uppeldismála og jákvæðrar sálfræði í skólastarfi og hefur starfað af heilindum að málefnum barnanna í leikskólanum Laufásborg. Jensína kom í þáttinn í dag. Í sumar eru fjörutíu ár liðin frá því að fyrsta alþjóðlega sumarnámskeiðið í íslenskri tungu og menningu var haldið við Háskóla Íslands. Námskeiðið var sérstaklega hannað fyrir námsmenn sem komu hingað frá erlendum háskólum. Branislav Bédi kom í þáttinn í dag, en hann kemur frá Slóvakíu og er doktor í annarsmálsfræðum við Árnastofnun og hefur kennt íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur var svo með okkur í dag í veðurspjallinu í beinni útsendingu úr hitanum í Rómarborg. Í dag horfði hann einmitt til hitabylgjunnar í Evrópu, hvað hefur mælst hár hiti og hverjar eru horfurnar? Í því samhengi fræddi hann okkur um rauða hitaviðvörun, hvað þýðir hún? Hverjar eru ástæður þessa og hvað er hitahvelfing? Og hver er tengingin á milli hitabylgjunnar og kalds sjós og lofts suðvestan Íslands? Í restina fór Einar svo aðeins yfir horfurnar hér heima framundan. Tónlist í þættinum í dag: Í huga mér / Brimkló (Quillan Pierce, texti Jón Sigurðsson) Allt það góða / Helgi Pétursson (Kris Kristoferson, texti Jónas Friðrik Guðnason) Á úthafsins öldum / Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) Turistens klagan / Cornlis Vreeswijk (Cornelis Vreeswijk) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/22/26 | Söngleikir án vettvangs, hreinlæti í Reykjavík frá 1968 og Grétar Halldór lesandi vikunnar | Þór Breiðfjörð tónlistarmaður er nýútskrifaður úr meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Meistararitgerðin hans heitir Vinsældir án vettvangs, staða söngleikjalistformsins á Íslandi sem menningarvettvangs. Þór kom í þáttinn og sagði okkur betur frá efni ritgerðarinnar, enda hefur hann heldur betur lifað og hrærst í söngleikjaforminu í gegnum tíðina. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, kom svo til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn leyfði hún okkur að heyra hluta af spjalli Stefáns Jónssonar við Gústaf Pálsson borgarverkfræðing úr þættinum Hálftíminn: Um hreinlætið í Reykjavík frá árinu 1968. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Grétar Halldór Gunnarsson, prestur við Kópavogskirkju. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Grétar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Skrifað í sand - æviminningar Karls Sigurbjörnssonar Sálumessa syndara - æviminningar Esra Péturssonar geðlæknis (Ingólfur Margeirsson ritaði) Siddharta e. Hermann Hesse (íslenskuð af Haraldi Ólafssyni) Páll postuli Sigurbjörn Einarsson Tónlist í þættinum í dag: Bjartsýni / Ríó tríó (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) (Café Song) Empty Chairs and Empty Tables / Þór Breiðfjörð (Alain Boublil, texti Claude-Michel Schönberg, Úr Vesalingunum) Út á stoppistöð / Stuðmenn ( Jakob Frímann Magnússon) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/19/26 | Andrea Róbertsdóttir föstudagsgestur, og leikfimi, sítrónur og fótalykt í matarspjallinu | Andrea Róbertsdóttir framkvæmdastjóri Félags kvenna í atvinnulífinu var föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni. Hún var tilnefnd til Stjórnunarverðlauna Stjórnvísis 2026 en þau verðlaun eru veitt stjórnendum sem hafa skarað framúr á sínu sviði og sýnt framúrskarandi hæfni í starfi. Andrea hefur komið víða við í atvinnulífinu og hefur mjög gaman af lífinu. Hún er þekkt fyrir lífsgleði og jákvæðni og við töluðum við hana um lífið og tilveruna og ferðuðumst aftur í tímann og svo aftur til dagsins í dag. Matarspjallið með Sigurlaugu Margréti var svo á sínum stað og áætlunin var að tala um sumarsólstöður sem eru á sunnudaginn og mat sem er við hæfi að borða þá og í dag á kvenréttindadaginn. Aftur á móti festumst við í spjalli upp úr Eldhúsbókinni gömlu, yfir greinum um líkamsrækt húsmæðra, sítrónur og táfýlu. Tónlist í þættinum í dag: Má ég / Ragnheiður Gröndal (Ragnheiður Gröndal) Hakk og spaghettí / Árný Margrét (Svavar Pétur Eysteinsson) Fyrrverandi / Una Torfa (Una Torfadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/18/26 | Ofbeldi gegn öldruðum, skaðleg efnaáhrif á líkama og húð og Jónatan um Kristján Kristjánsson | Á mánudaginn var alþjóðadagur vitundarvakningar um ofbeldi gegn öldruðum af því tilefni kom varaformaður Landssambands eldri borgara, Sigurður Ágúst Sigurðsson, í þáttinn í dag. Hlutfall einstaklinga 60 ára og eldri mun aukast um tæp 40% á heimsvísu frá 2019-2030 og ofbeldi gegn öldruðum er vanmetið og getur birst í margvíslegri mynd. Sigurður sagði okkur betur frá þessu í þættinum í dag. Una Emilsdóttir er sérnámslæknir í atvinnu og umhverfislæknisfræði og er við nám og störf í Danmörku. Una segir mikilvægt að vera upplýstur neytandi og að það skipti máli að forðast skaðleg efnaáhrif á líkama og húð með þekkinguna að vopni. Við heyrðum í Unu í dag og forvitnuðumst til dæmis um hvað atvinnu- og umhverfislæknisfræði felur í sér. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenskt tónlistarfólk og í dag var komið að KK eða Kristjáni Kristjánssyni saxófónleikara, en hann er kunnastur fyrir hljómsveit sína KK sextettinn sem hann starfrækti í um fimmtán ára skeið. Sveitin var vinsælasta danssveit landsins og með henni sungu þekktir söngvarar, til dæmis Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms. Tónlist í þættinum í dag: Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Á Mallorca / South River Band (Ólafur Þórðarson, texti Helgi Þór Ingason) Lukta-Gvendur / Alfreð Clausen, Sigrún Jónsdóttir og KK sextett (N. Simon, texti Eiríkur Karl Eiríksson) 9:20 Special / KK sextett (J. Palmer, Earle Warren & W. Engwick) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/16/26 | Hugleiðingar um vestræna menningu, Landsmót 50+ og Sigurdís á Heilsuvaktinni | Við rákumst á áhugaverða grein sem Miriam Petra Ómarsdóttir Awad skrifaði í Heimildina undir fyrirsögninni Hugleiðingar um vestræna menningu. Þar veltir hún fyrir sér hvernig hugmyndin um „vestræna menningu“ mótar sýn okkar á annað fólk. En föðurfjölskylda hennar er egypsk og hún hefur í gegnum tíðina lent ítrekað í þeirri stöðu að finna sig knúna til þess að sannfæra viðmælendur sína um að þau væru gott fólk og oftar en ekki að „þau væru sko mjög vestræn“. Miriam var hjá okkur í þættinum í dag. Landsmót UMFÍ 50+ fer fram helgina og aðalmótssvæðið er í Hrafnagilshverfi en einnig verður keppt á Akureyri og Dalvík. Mótið er opið öllum sem verða 50 ára á árinu og eldri. Keppt verður í 18 greinum á mótinu og við slógum á þráðinn norður og töluðum við Ómar Braga Stefánsson landsfulltrúa og framkvæmdastjóra Landsmóta UMFÍ. Notkun tíðahvarfahormóna hefur aukist talsvert hér á landi síðustu fimm ár. Rannsóknir sýna svo ekki verður um villst að það er ekki áhættulaust, eins og margir gætu haldið, heldur er talið að þau geti aukið áhættu á brjóstakrabbameini hjá konum ef þau eru notuð of lengi og í of miklu magni. Sigurdís Haraldsdóttir krabbameinslæknir og prófessor í Háskóla Íslands segir tíðahvarfahormón klárlega eiga rétt á sér ef einkenni breytingaskeiðs hjá konum eru mikil og þrálát en þá til eins skamms tíma og hægt er. Helga Arnardóttir ræddi við Sigurdísi í Heilsuvaktinni í dag um þetta og helstu áhættuþætti fyrir krabbameini hjá konum. Tónlistin í þættinum: Sumarvísa / Þorgerður Ása Aðalsteinsdóttir (Matt Poulson, texti Iðunn Steinsdóttir) Anna Maja / Berti Möller (Henni Rasmus, texti Tómas Guðmundsson) Lets Go Away for a While / Beach Boys (Brian Wilson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/15/26 | Inga Eydal um föður sinn, Þjóðskjalasafnið og Vilhjálmur Pétursson lesandi vikunnar | Við heyrðum í Ingu Eydal í dag, hún var í hljóðstofu fyrir norðan og við ræddum við hana um föður hennar Ingimar Eydal tónlistarmann en þessa dagana er einmitt verið að auglýsa tónleika honum til heiðurs, en hann hefði orðið níræður í haust. Ingimar lék á píanó og var einn vinsælasti hljómsveitarstjóri á Íslandi og fjölhæfur tónlistarmaður. Ingimar var einnig vinsæll kennari og tók virkan þátt í bæjarlífinu á Akureyri. Ingimar stofnaði eigin hljómsveit 1962, Hljómsveit Ingimars Eydal sem lék í Sjallanum á Akureyri um margra áratuga skeið. Við skruppum á Þjóðskjalasafn Íslands og töluðum við Brynhildi Ingvarsdóttur fagstjóra miðlunar og útgáfu þar á bæ. Hún sagði frá hinum ýmsu leiðum miðlunar til að almenningur eigi sem greiðastan aðgang að safninu. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Vilhjálmur Pétursson rithöfundur og þýðandi. Hann var að gefa út fyrstu skáldsögu sína, nóvelluna, Harðindi, sem fékk fljúgandi start og vann samkeppnina Nýjar raddir hjá Forlaginu. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Vilhjálmur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Huldukonan e. Fríðu Ísberg Irpa e. Hildi Knútsdóttur Project Hail Mary e. Andy Weir Góðir Íslendingar e. Huldar Breiðfjörð Minnisbók e. Sigurð Pálsson Tónlistin í þættinum: María Ísabel / Hljómsveit Ingimars Eydal (J. Moreno & L. Moreno, texti Ásta Sigurðardóttir) Vor í Vaglaskógi / Hljómsveit Ingimars Eydal (Jónas Jónasson, texti Kristján frá Djúpalæk) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/12/26 | Hörður Magnússon föstudagsgestur og köld tómatsúpa í matarspjallinu | Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon. Hann er einn þeirra sem lýsir leikjunum á HM sem hófst í gærkvöldi. Hann var sjálfur mikill markaskorari fyrir FH á löngum ferli og spilaði einnig með A landsliðinu. Hann hefur verið íþróttafréttamaður í um það bil þrjátíu ár og lýsir íþróttakappleikjum af mikilli innlifun. Við fórum með honum aftur í tímann á æskuslóðirnar í Hafnarfirðinum, upphaf knattspyrnuferilsins, hvernig það kom til að hann fór að vinna í íþróttafréttamennskunni, ást hans á tónlist og margt fleira. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Köld spænsk tómatsúpa er kælandi í sumarhitanum , við kíktum á uppskrift að einni slíkri og flettum svo í Eldhúsbókinni góðu einu sinni sem oftar. Tónlistin í þættinum: Eitt lag enn / Brimkló og Björgvin Halldórsson (erlent lag, texti Ómar Ragnarsson) Herbergið mitt / Brimkló (Arnar Sigurbjörnsson, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ripples / Genesis (Mike Rutherford, Phil Collins, Steve Hackett & Tony Banks) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 6/11/26 | Anna Lára framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Sigurgeir syndir fyrir Pieta og Jónatan um Svavar Gests | Í fréttum í gær, 10.júní, fagnaði framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Anna Lára Steindal, því að íslensk stjórnvöld hafi fullgilt valfrjálsri bókun við samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hún segir það hana vera mikla réttarbót. En hvað er þessi bókun og hvað þýðir hún og hverju breytir hún? Anna Lára kom í þáttinn í dag og fór með okkur yfir það af hverju þetta skiptir svona miklu máli. Nú líður senn að sögulegu afreki Sigurgeirs Svanbergssonar sjósundskappa, en hann ætlar að synda niður Lagarfljót til að vekja athygli á þjónustu Píeta samtakanna á Austurlandi og um land allt. Sigurgeir stefnir á að láta til skara skríða um leið og veður leyfir, vonandi næsta mánudag, 15.júní. Enginn hefur áður reynt slíkt afrek í leirlitu Lagarfljótinu. Björgunarsveitin Brimrún hefur staðið með honum í undirbúningnum og hefur kortlagt fljótið og leiðina sem liggur frá Fljótsdal niður að Lagarfossvirkjun, nærri 50 kílómetrar og áætlað er að sundið taki um 24 klst. Guðrún Birna Le Sage markaðsstjóri Pietasamtakanna sagði okkur betur frá þessu og starfi samtakanna í dag. Svo hélt Jónatan Garðasson áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði hann um Svavar Gests. Líklega hafa fáir ef nokkur komið að íslenskri tónlist með jafn fjölbreytilegum hætti og Svavar gerði en segja má að framlag hans í því samhengi sé ómetanlegt. Jónatan sagði okkur betur frá ferli og lífi Svavars í þættinum. Tónlistin í þættinum: Dís / Ragnheiður Gröndal (Jóhann Jóhannsson, texti Bragi Valdimar Skúlason og Ragnar Kjartansson) Allur lurkum laminn / Bubbi Morthens (Hilmar Oddsson) Þórsmerkurljóð / Ragnar Bjarnason og Hljómsveit Svavars Gests (lagahöfundur ókunnur, texti Sigurður Þórarinsson) Hvert er farið blómið blátt? / Ragnar Bjarnason og Ellý Vilhjálms með Hljómsveit Svavars Gests (Pete Seger, texti Valgeir Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/10/26 | Gunnlaugur keppir á US Open, Rjúfum mynstrið og vísindaspjallið | Á mánudagskvöldið kom stórfrétt í íslenskri golfsögu þegar kylfingurinn Gunnlaugur Árni Sveinsson vann sér inn þátttökurétt á Opna bandaríska meistarmótinu í golfi. Hann verður fyrstur íslenskra karlkylfinga til að keppa á mótinu og annar Íslendingurinn til að keppa á risamóti karla. Gunnlaugur Árni, sem er einungis tvítugur, er gríðarlegt efni. Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri Golfsambands Íslands, kom í þáttinn og útskýrði fyrir okkur í dag hversu stórt það er að komast inn á þetta mót og hverju það skiptir fyrir Gunnlaug Árna og íslenskt golf. Ný vitundarherferð er í gangi til styrktar Kvennaathvarfinu undir yfirskriftinni Rjúfum mynstrið. Rúmlega fimm þúsund manns hafa sótt prjónauppskriftina að prjónapeysunni Skjól sem Tinna Laufdal hannaði í samstarfi við Kvennaathvarfið og garn er að seljast upp í verslunum og fjöldi viðburða hefur verið skipulagður víða um land. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra kom í þáttinn í dag einmitt í einni útgáfu af peysunni Skjól. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið, eins og hún hefur gert á miðvikudögum í vetur. Í dag sagði hún okkur frá rannsóknum á collageni sem fæðubótaefni. Tónlistin í þættinum: Ég veit þú kemur / Ellý Vilhjálms (Oddgeir Kristjánsson, texti Ási í Bæ) Ó borg mín borg / Haukur Morthens (Haukur Morthens, texti Vilhjálmur frá Skáholti) Ástrós / Bubbi Morthens og Bríet (Bubbi Morthens) Ég er kominn heim / Óðinn Valdimarsson (Imre Kálmán, texti Jón Sigurðsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/9/26 | Dánaraðstoð, bók um Kjósasýslu og veðurspjallið með Einari | Samkvæmt nýrri könnu er viðhorf almennings á Íslandi til dánaraðstoðar að tæp 74 prósent eru mjög hlynnt eða fremur hlynnt henni. Lífsvirðing er félag um dánaraðstoð sem var stofnað árið 2017 og hefur að markmiði að stuðla að opinni, upplýstri og yfirvegaðri umræðu um dánaraðstoð við skýr og ströng skilyrði. Ingrid Kuhlman er formaður félagsins og hún sagði okkur meira frá félaginu, niðurstöðum könnunarinnar og sinni persónulegu reynslu í þættinum í dag, en faðir hennar fékk dánaraðstoð í Hollandi árið 2002. Árbók Ferðafélags Íslands 2026 ber heitið Kjósasýsla og er nr.99 í þessri merku ritröð. Yfir sögusvið bókarinnar gnæfir fjallgarðurinn Esjan sem fylgst hefur með mannlífinu í Kjósarsýslusveitum frá margvíslegum sjónarhornum. Bjarki Bjarnason er höfundur bókarinnar en hann gjörþekkir þetta landsvæði og hefur búið í Mosfellssveit frá barnæsku. Hann kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá bókinni en í henni er að finna áhugaverðar ljósmyndir, jarðfræðikort, gróðurkort og kort sem sýnir staðsetningu á herbúðum sem risu víða í Kjósasýslusveitum í seinni heimsstyrjöldinni. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag ætlar Einar byrjaði á því að kenna okkur nokkrar þumalputtareglur sem ágætt er að hafa í huga þegar kemur að veðrinu. Til dæmis: Hvað getur far skýjanna sagt okkur um það hvort það sé að kólna eða hlýna. Hvað segir blika á suðurhimni okkur um regnhorfur? Hver er munurinn á uppláttarbliku og fyrirstöðubliku? Hvenær verða góðviðribólstar að skúrabúlstrum? Svo hefur mælst sérlega lágur og eftirtektarverður loftþrýstingur fyrir árstímann, sem minnir á júní 1961 eða hvað? Og að lokum skoðaði Einar aðeins veðurhorfurnar framundan. Tónlistin í þættinum: Mexico / Snorri Helgason og Bríet (Snorri Helgason) Tryllta tungl / Brimkló (Barnes og Haggart, Ómar Ragnarsson) Sveitin mín / Haukur Morthens og Mezzoforte (Jóhann Helgason) Tempó Prímó / Uppáhellingarnir og Sigríður Thorlacius (Jón Múli Árnason, texti Jónas Árnason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/8/26 | Þurfamenn fá mannréttindi, frá heimsókn forseta Íslands til Noregs 1955 og Andri Fannar lesandi vikunnar | Sería Sögufélags er ný ritröð um Íslandssögu þar sem vandaðar rannsóknir eru settar fram í lifandi frásögn. Bækurnar eru ríkulega myndskreyttar og er hver bók um sig nákvæmlega 100 blaðsíður. Ragnheiður Kristjánsdóttir er ein af fyrstu höfundum í þessum nýjum bókaflokki og hún kom til okkar í dag. Bók Ragnheiðar nefnist Þurfamenn fá mannréttindi, en árið 1927 var gerð breyting á íslenskum fátækralögum en fram að því var gert ráð fyrir að þau sem þáðu fátækrastyrk væru svipt ýmsum borgaralegum réttindum, svo sem atvinnufrelsi og kosningarétti. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar með gullmola af safninu eins og hún hefur gert annan hvern mánudag í vetur. í dag kom hún með tvo fréttaauka frá árinu 1955 frá heimsókn forseta Íslands, Ásgeirs Ásgeirssonar, til Noregs. Fyrst stutt umfjöllunum Bjarna Guðmundssonar blaðaafulltrúa utanríkisráðuneytisins ferðina og svo frá heimkomu forsetahjónanna og móttökunum sem þau fengu, ræðu Auðar Auðuns bæjarstjóra og Ásgeirs sjálfs. Helga Lára sagði okkur meira frá þessu í þættinum. Og lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Andri Fannar Óttósson starfsmaður BUGL, barna- og unglingageðdeildar Landspítalans. Hann ætlar sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Andri talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ljóðasafn Einars Braga, Lunch Poems e. Frank O’Hara Morgunþula í stráum e. Thor Vilhjálms Faðir vorið Selurinn Snorri Skólaljóðin og Íslendingasögurnar Tónlistin í þættinum: Sól bros þín / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Negril / Bjartmar Guðlaugsson (Bjartmar Guðlaugsson) Gott er að lifa / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/5/26 | Hinrik Ólafsson föstudagsgestur og súrmjólk og purusteik í matarspjallinu | Hinrik Ólafsson leikari og leiðsögumaður var föstudagsgesturinn okkar í dag en hann er handritshöfundur og leikstjóri nýrrar íslenskrar heimildarmyndar, Above Iceland, sem verður frumsýnd í Bíó Paradís 10.júní. Í henni er fjallað um eldfjöll, jöklar, þjóðsögur og lífsbaráttu þjóðar. Myndin er sérstök fyrir það leyti að hún er aðallega tekin upp að ofan með drónum. Hinrik Ólafsson útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands 1993 og hefur starfað sem leikari í leikhúsum landsins og í fjölda kvikmynda- og sjónvarpsverkefna. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið. Grasið grænkar, laufblöðin spretta fram, beðin fyllast af gróðri, velkomnum og óvelkomnum og alltaf þurfum við að borða. Við töluðum lengst af um súrmjólk, minningar og nostalgíu henni tengd og aðeins í lokin um purusteik. Tónlistin í þættinum: Times like these / Glen Campbell (Foo Fighters lag) Time in a bottle / Jim Croce (Jim Croce) You´ve got að friend / James Taylor (Carole King) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/4/26 | Lögin hans Bubba, hjóluðu 3.500 km. og Jónatan um Stefán Jónsson í Lúdó | Gunnlaugur Jónsson og Þór Freysson komu til okkar í dag, en þeir hafa verið að gera nýju heimildarþættina um Bubba Morthens, Lögin hans Bubba, þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Á laugardaginn er komið að sjötugsafmælinu sjálfu, en þriðji og síðasti þátturinn verður í sjónvarpinu á föstudagskvöldi. Í þáttunum er rætt við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Þeir Þór og Gunnlaugur fræddu okkur aðeins um Bubba Morthens í þættinum. Við töluðum snemma í apríl við Einar Guttormsson og Hartmann Guðmundsson sem voru þá á leiðinni í 3.500 km. hjólreiðaferðum vesturströnd Bandaríkjanna á 37 dögum. Nú eru þeir komnir aftur til baka og við heyrðum í dag hvernig ferðin gekk. Markmið ferðarinnar var að vekja athygli á Parkinsonsjúkdómnum og undirstrika mikilvægi líkamlegrar hreyfingar í baráttunni við sjúkdóminn, en Einar er sjálfur með Parkinson. Einar og Hartmann sögðu okkur betur frá hjólreiðaferðinni. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag talaði Jónatan um Stefán Jónsson söngvara Lúdó sextett, eða Stebba í Lúdó. Hann var meðal allra fyrstu rokksöngvara Íslands en hann kom kornungur fram á sjónarsviðið laust fyrir 1960 og varð jafnframt sá fyrsti af þeirri kynslóð rokksöngvara sem söng inn á plötu. Tónlistin í þættinum: Fjórir kátir þrestir / Egill Ólafsson, Edda Heiðrún Backman og Tamlasveitin (erlent lag, texti Jón Sigurðsson) Þrek og tár Fallegur dagur / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Því ekki að taka lífið létt / Lúdó sextett (Lew Douglas, Cliff Parman & Frank Levere, texti Ómar Ragnarsson) Ólsen Ólsen / Lúdó sextett (Mann & Appel, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/3/26 | Gervigreind í kennslu með Námfús, histamínóþol kvenna á miðjum aldri og vísindaspjallið með Eddu | Það er fátt sem hefur verið rætt meira um undanfarin tvö ár en gervigreind og spurningarnar eru óteljandi, margt afskaplega spennandi og einni margt sem vekur ugg. En við kynntum okkur í dag hvernig gervigreindin getur virkað í skólum, bæði fyrir kennara og nemendur. Námfús er íslensk lausn fyrir leikskóla og grunnskóla sem er notuð bæði á Íslandi og Þýskalandi og unnið er að því að aðlaga lausnina fyrir framhaldsskóla. Skúli Thorarensen framkvæmdastjóri Námfús kom í þáttinn í dag við fengum hann til að útskýra fyrir okkur hvernig þetta virkar og hverjir möguleikarnir eru. Næringarþerapía á rætur að rekja til hugmyndafræði functional medicine, þar sem meginmarkmiðið er að styðja líkamann út frá rót vandans. Við ræddum við Sigríði Róbertsdóttur, eða Siggu Róberts, í þættinum í dag, en hún er næringaþerapisti sem lærði fræðin í Bretlandi. Hún segir að líkaminn hafi ótrúlega getu til að ná jafnvægi þegar hann fær réttan stuðning. Hún talaði meðal annars um það af hverju konur á miðjum aldri eru í meiri hættu á histamínóþoli. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn á músum þar sem var í fyrsta skipti skoðað hvernig krabbamein og krabbameinslyf virka mismunandi á mismunandi aldurskeiðum þar sem líkaminn og ónæmiskerfi líkama okkar eru berskjaldaðri á efri árum en þegar við erum ung. Tónlistin í þættinum: Þetta loft / Sigurður Halldór Guðmundsson (Sigurður Halldór Guðmundsson) Það sýnir sig / Hjálmar (Sigurður Halldór Guðmundsson) Heiðlóan / Gísli Magna og Co. (Steingrímur M. Sigfússon) Kötturinn sem gufaði upp / Olga Guðrún Árnadóttir (Ólafur Haukur Símonarson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/2/26 | Leikhópurinn Lotta tuttugu ára og Guðbrandur Árni á Heilsuvaktinni | Leikhópurinn Lotta heldur upp á tuttugu ára afmælið í ár og sýning hópsins í sumar er Litaland sem segir frá grunnlitunum gulum, rauðum og bláum. Hver litur byggir sinn eigin heim í Litalandi og í upphafi eru samskipti milli heimanna lítil enda vill hver litur halda sig út af fyrir sig. Anna Bergljót Thorarensen er höfundur verksins og jafnframt stofandi leikhópsins. Hún kom í þáttinn í dag ásamt öðrum af tveimur leikstjórum, Þórunni Lárusdóttur. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Hvað einkennir heilbrigð og langlíf ástarsambönd og hvenær verða þau óheilbrigð? Hvaða máli skipta tengslin og nándin sem við fáum í æsku fyrir ástarsambönd okkar á fullorðinsárum og hvernig getur það komið fram á neikvæðan hátt ef örugg tengsl og nánd hafa ekki verið til staðar. Guðbrandur Árni Ísberg sálfræðingur leitast við að svara þessum spurningum og fjölmörgu öðru um ástina í nýútkominni bók sinni Í augum þínum verð ég til. Helga ræddi við Guðbrand á Heilsuvaktinni í tilefni af því. Tónlistin í þættinum: Aftur heim til þín / Eyþór Ingi og Lay Low (Baldur Hjörleifsson og Jónína Guðrún Eysteinsdóttir) Hver er hann? / Leikhópurinn Lotta, Rósa Ásgeirsdóttir (Baldur Ragnarsson, texti Sævar Sigurgeirsson) Ósvikin ást / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 6/1/26 | Einverfa og kulnun kvenna, skjöl Jónasar frá Hriflu og Úlfar lesandi vikunnar | Á undanförnum árum hefur umræða um einhverfu kvenna aukist en þær fá oft ekki greiningu fyrr seint á ævinni. Í áratugi var einhverfa skilgreind út frá drengjum og stúlkur féllu utan rammans og fullorðnar konur enn frekar. Þegar greiningin kemur, oft á þrítugs- eða fertugsaldri og stundum eftir fimmtugt, lýsa margar konur henni eins og þar hafi þeim loksins verið gefin hin rétta skýring á eigin lífi. Skýringu á því hvers vegna ákveðnir hlutir voru alltaf erfiðari, hvers vegna félagsleg samskipti voru alltaf lýjandi og hvers vegna einföld dagleg verkefni gátu á stundum tekið alla orku frá þeim. Við ræddum við Vigdísi M Jónsdóttur sálfræðing í dag. Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið og hittum þar fyrir Njörð Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörð. Hann sýndi okkur einkaskjöl sem Jónas Jónsson frá Hriflu lét geyma á safninu eftir að hann lét af störfum. Hann fór fram á það að skjölin skyldu vera lokuð frá afhendingu 1966 til 1.maí árið 1985, en þá hefði hann orðið 100 ára. Njörður sagði okkur frá þessum skjölum sem geymd eru í fimm öskjum á safninu, en þau voru talsvert persónuleg. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Úlfar Jökull Eyjólfsson nemandi í MR. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Himnaríki og helvíti e. Jón Kalman Þrúgur reiðinnar e. john steinbeck Gamli maðurinn og hafið e. Ernest Hemingway Behind the shades (ævisaga Bob dylans) e. Clinton Heylin. Náðarstund e. Hannah Kent Harry Potter bækurnar. Tónlistin í þættinum: Á ferðalagi / Ragnar Bjarnason (D. Darst, texti Ómar Ragnarsson) The Girl from Ipanema / Stan Getz og Astrud Gilberto (Carlos Antoni Jobim, Vinicius de Moraes & Norman Gimbel) Kóngur einn dag / KK og Magnús Eiríksson (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR | — | ||||||
| 5/29/26 | Sigtryggur Baldursson föstudagsgestu og espadrillur og sniglar í matarspjallinu | Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var trymbillinn og tónlistarmaðurinn Sigtryggur Baldursson. Hann hefur verið í fjölda hljómsveita, Þeym, Kukl, Sykurmolarnir, svo er það auðvitað hliðarsjálf hans Bogomil Font, sem sungið hefur sig inn í íslensku þjóðarsálina, bæði með Milljónamæringunum og Greiningardeildinni. En með síðastnefndu sveitinni var hann að senda frá sér glænýtt lag af glænýrri plötu sem er væntanleg og við fengum að heyra það í þættinum. En við ferðuðumst líka með honum fram og aftur í tíma, frá Babylon í New York í Kópavoginn. Á handahlaupum sagði hann okkur til dæmis frá hljómsveitinni Hattímas, knattspyrnuferlinum, tilurð Bogomil Font og miklu fleiru í þættinum í dag. Svo kom Sigurlaug Margrét til okkar í matarspjallið og í dag voru það espadrillur, kjúklingar, sniglar og mátulega skítugir veitingastaðir sem voru ræddir. Tónlistin í þættinum: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font og Greiningardeildin Í faðmi dalsins / Haukur Morthens (Bjarni J. Gíslason, texti Guðmundur Þórðarson) Gellur eru bestar / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON | — | ||||||
| 5/28/26 | Gefum íslensku séns, vatnsvernd og Jónatan um Hallbjörgu Bjarnadóttur | Við forvitnuðumst í dag um verkefnið Gefum íslensku séns sem sett var af stað við Háskólasetur Vestfjarða en hefur nú verið stofnað sem formlegt félag sem ætlað er að ná til landsins alls. Markmiðið er að hvetja íslenska móðurmálshafa til að vera þolinmóði, umburðarlyndir og einnig hvetjandi við þau sem eru að læra málið. Við fengum Eirík Rögnvaldsson, prófessor emeritus og Elizu Reid, rithöfund, fyrrverandi forsetafrú, til að segja okkur frá verkefninu og félaginu Gefum íslensku í dag. Við töluðum svo um vatn og vatnsvernd í þætti dagsins. Vatns- og fráveitufélag Íslands (VAFRÍS) stendur fyrir opnum fræðslufundi um vatnsverndarskipulag í samstarfi við Háskóla Íslands seinna í dag. Þar verður meðal annars rætt um það hvernig góðar ákvarðanir um vatnsvernd geta tryggt okkur heilnæm vatn í kranann og hvernig á að vega saman hagsmuni í þessum mikilvægu málum. Einn þeirra sem tekur til máls á þessum fundi er Baldur Dýrfjörð, stjórnarmaður í VAFRÍS. Hann kom í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar í dag og hélt áfram að fræða okkur og hlustendur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag var það Hallbjörg Bjarnadóttir. Jónatan sagði okkur frá stórmerkilegum ferli hennar og lífi og við heyrðum tvö lög sem hún söng. Tónlistin í þættinum: Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Kristján Jónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Sveinbjörn Egilsson) Sukiyaki / Kuy Sakamoto (Nakamura, Rokusuke) Moonlight and Shadows / Hallbjörg Bjarnadóttir (Frederik Hollander, texti Leo Robi) Björt mey og hrein / Hallbjörg Bjarnadóttir (Hallbjörg Bjarnadóttir, texti Stefán Ólafsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON | — | ||||||
| 5/27/26 | Herferð Amnesty á Íslandi, steraleikarnir og vísindaspjall með Eddu | Við kynntum okkur nýja herferð Íslandsdeildar Amnesty International sem kallst Mannúðin mun sigra - Virðum réttindi fólks á flótta. Markmið hennar er að mæta ótta og rangfærslum með staðreyndum, mannlegum sögum og samtali sem byggir á samkennd og mannréttindum. Anna Lúðvíksdóttir, framkvæmdastjóri Íslandsdeildarinnar, kom í þáttinn og sagði okkur betur frá herferðinni. Við kynntum okkur svo umdeilt íþróttamót. Um helgina fór fram viðburður sem er kallaður "Enhanced games“ sem stundum er kallaður „steraleikarnir“ upp á íslensku. Þar var keppt í nokkrum greinum - eins og sundi, spretthlaupi og lyftingum. Og á þessum leikum eru ýmis lyf og efni leyfð sem almennt eru bönnuð í hefðbundnum íþróttakeppnum. Einn íslenskur keppandi tók þátt - og vann, Hafþór Julius Björnsson. Við fræddumst aðeins um þessa keppni og spjölluðum við Jóhann Pál Ástvaldsson íþróttafréttamann. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar með vísindaspjallið. Í dag sagði hún okkur frá rannsókn þar sem kannaður var munurinn á virkni heilans þegar við skrifum með blýanti eða penna, sem sagt handskrifum, miðað við það að pikka á lyklaborðin. Tónlistin í þættinum: Kúadelluslamm / Melchior, Elín Jónína Bergljótardóttir (Hilmar Oddsson) Landþvættirnir / Bogomil Font (Rafael De Leon, texti Sigtryggur Baldursson) Gi Mig Hvad Du Har / Dodo and The Dodos (C. Nerenst, texti A. Valbro og S. Christiansen) Reynimelur / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Steingrímur Karl Teague, Magnús Trygvason Eliassen og Daníel Friðrik Böðvarsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐMUNDUR PÁLSSON | — | ||||||
| 5/26/26 | Gullmoli frá 1946, veðurspjall um hita og hret og Birna lesandi vikunnar | Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV kom til okkar í dag með gullmola af safni RÚV. Í þetta sinn var það efni úr útvarpsþættinum Um daginn og veginn frá árinu 1946 þar sem Vilhjálmur S. Vilhjálmsson blaðamaður fjallar um nýafstaðnar kosningar í Reykjavík, þáttöku, framkvæmd talninga og áróðusaðferðir, með áherslu á nauðsyn siðfágaðrar kosningabaráttu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Hann byrjaði í dag á að tala um hitana í Evrópu og ástæðu þeirra. Svo voru það horfurnar hjá okkur og spár um jafnvel vorhret í byrjun júní. Og í því samhengi rifjaði hann upp með okkur upp sumarhret á sama tíma í fyrra og ekki síst hitteðfyrra. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Birna Hjaltadóttir kennari í Brúarskóla við Dalbraut, en hún er einnig með meistaranám í ritlist. Við fengum hana til að segja okkur frá því hvað hún hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Birna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Frumbyrjur e. Dag Hjartarson Huldukonan e. Fríðu Ísberg Formaður húsfélagsins e. Friðgeir Einarsson Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftir á e. Höllu Birgisdóttur Jakobína, saga skálds og konu e. Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur. Salka Valka e. Halldór Laxness Tónlistin í þættinum: Það er svo ótalmargt / Ellý Vilhjálms (Jackie Smith & Derry Lindsay, texti Jóhanna G. Erlingsson) Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson (W. Meisel, texti Theódór Einarsson) Northern Sky / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON | — | ||||||
| 5/22/26 | Helgi Björns og Ragga Gísla föstudagsgestir og matarspjall um vorilm og fleira | Það voru tveir föstudagsgestir í dag, Helgi Björnsson og Ragnhildur Gísladóttir, en þau sameina krafta sína á tónleikum sem þau kalla Helgi & Ragga syngja og spjalla. Búið er að setja á þrenna tónleika, til að byrja með, þar sem þau munu flytja mörg af þeim lögum sem Íslendingar þekkja með þeim og hafa tekið ástfóstri við, auk þess að rifja upp eftirminnileg augnablik úr litríkri vegferð þeirra í tónlist. Þau skipa bæði stóran sess í íslenskri tónlistarsögu sem var gaman að rifja upp með þeim í þættinum og ferðast með þeim í gegnum tímann. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag vildi Sigurlaug ræða lyktina sem fyllir loftið í byggðum landsins á þessum árstíma... og þá var hún ekki að meina ilminn af nýslegnu grasi. Svo rifjuðum við upp fleiri greinar úr Eldhúsbókinni frá sjötta og sjöunda áratugnum sem standast misvel tímans tönn. Tónlistin í þættinum: Lífsgleði / Moses Hightower (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Draumaprinsinn / Ragnhildur Gísladóttir (Magnús Eiríksson) Ég fer á Landrover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Atli Bollason og Guðmundur Óskar Guðmundsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON | — | ||||||
| 5/21/26 | Dáleiðslufélag Íslands 25 ára, Skólakór Öldutúns 60 ára og Jónatan um Gunnar Ormslev | Hannes Björnsson sálfræðingur kom til okkar í dag. Hann hefur starfað sem sálfræðingur frá 2009 en var áður sóknarprestur á Vestfjörðum og prestur Íslendinga í Noregi. Hann vinnur mikið í greiningu og klínískri meðferð þunglyndis, kvíða, áfalla og ADHD fullorðinna. Hannes er einnig formaður Dáleiðslufélags Íslands, sem á 25 ára afmæli þessa dagana og hann sagði okkur frá félaginu, ráðstefnu sem fer fram í lok maí og hvernig dáleiðsla nýtist hans starfi. Skólakór Öldutúnsskóla fagnar 60 ára afmæli með afmælistónleikum í Hörpu sunnudaginn 24. maí. Egill Friðleifsson, stjórnandi kórsins vann þrekvirki því hann hélt kórnum úti árum saman og þurfti sífellt að þjálfa upp nýjar raddir og náði að halda uppi gæða söngstarfi. Brynhildur Auðbjargardóttir tók við þegar Egill hætti, en hún var nemandi í Öldutúnsskóla á sínum tíma og söng með kórnum meðal annars inn á vísnaplöturnar vinsælu með Björgvini Halldórssyni og Gunnari Þórðarsyni. Fyrrverandi kórfélagar munu koma fram á tónleikunum ásamt núverandi kór, en það hafa ýmsir fyrrum nemendur skólans haldið áfram að fást við tónlist eins og þær Brynhildur, Margrét Eir og t.d. Guðrún Árný ofl. Margrét Eir og Bryndhildur komu í þáttinn í dag. Svo kom Jónatan Garðarsson til okkar og hélt áfram að fræða okkur um íslenska tónlist og íslenskt tónlistarfólk. Í dag sagði hann okkur frá Gunnari Ormslev saxófónleikara. Gunnar má telja meðal máttarstólpa íslenskrar djasstónlistar á upphafsárum hennar en stundum er sagt að hann hafi komið með djassinn með sér til Íslands frá Danmörku. Jónatan sagði okkur meira frá hans merkilega ferli í þættinum í dag. Tónlistin í þættinum: Sólin er komin / Mugison (Örn Elías Guðmundsson) Klappa saman lófunum / Björgvin Halldórsson og Kór Öldutúnsskóla (Gunnar Þórðarson, íslensk þjóðvísa) Frá Vermalandi / Gunnar Ormslev (sænskt þjóðlag) Lady be Good / Tríó Jóns Páls Bjarnasonar (George & Ira Gerschwin) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON | — | ||||||
Showing 25 of 578
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart Positions
1 placement across 1 market.
Chart Positions
1 placement across 1 market.
