Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Most discussed topics
Brands & references
Total monthly reach
Estimated from 1 chart position in 1 market.
By chart position
- 🇮🇸IS · Society & Culture#3810K to 30K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
5K to 15K🎙 Weekly cadence·477 episodes·Last published 3mo ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
10K to 30K🇮🇸100% - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
3K to 9K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
On the show
From 10 epsHosts
Recent guests
Recent episodes
Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna
Feb 26, 2026
58m 46s
Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris
Feb 25, 2026
58m 16s
Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi
Feb 19, 2026
57m 47s
Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar
Feb 18, 2026
59m 10s
Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi
Feb 12, 2026
58m 17s
Social Links & Contact
Official channels & resources
Official Website
Login
RSS Feed
Login
| Date | Episode | Topics | Guests | Brands | Places | Keywords | Sponsor | Length | |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 2/26/26 | Sálfæði snúbúa og þvottahús spítalanna✨ | snúbúasálfræði+4 | Karítas Hrundar Pálsdóttir | RÚV | — | snúbúasálfræði+5 | — | 58m 46s | |
| 2/25/26 | Reykjavík Grapevine, Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis og May Morris✨ | mediacancer society+3 | Jón Trausti SigurðarsonEva Björg Óskarsdóttir | Reykjavík GrapevineKrabbameinsfélag Akureyrar+1 | Menntaskólinn á AkureyriAkureyri | Reykjavík Grapevinecancer society+3 | — | 58m 16s | |
| 2/19/26 | Barnaverndarkerfið og ferðaþjónusta í Grænlandi✨ | child protectiontourism+3 | Tómas Hrafn SveinssonHjört Smárason | Visit Greenland | Grænlandi | child protectiontourism+4 | — | 57m 47s | |
| 2/18/26 | Gervigreind forritar gervigreind, virk efri ár og vetrarklippingar✨ | artificial intelligencecommunity projects+3 | Eyrún Magnúsdóttir | Akureyrarbær50 Ways To Leave Your Lover+2 | — | artificial intelligenceEyrún Magnúsdóttir+3 | — | 59m 10s | |
| 2/12/26 | Ávaxtaflugur, grænlenskur atvinnurekstur og kaffinördismi✨ | ávaxtaflugurgrænlenskur atvinnurekstur+4 | Valgerður Jakobína HjaltalínChristian Keldsen | Háskóla ÍslandsSulisitsisut+4 | GrænlandiAkureyri | ávöxturflugur+5 | — | 58m 17s | |
| 2/11/26 | Bitcoin á niðurleið, listnám háskólastigi á Akureyri og fiskiflugan✨ | Bitcoinhigher education+4 | Björgvin Inga ÓlafssonGuðmundur Óli Scheving | BitcoinListaháskóli Íslands+1 | Akureyri | Bitcoineconomic decline+5 | — | 58m 56s | |
| 2/5/26 | Afleiðingar ofbeldis í æsku, Grænland árið 1976 og Bitcoin sveiflur✨ | childhood traumaGreenland history+3 | Bryndís Björk ÁsgeirsdóttirÞóra Sigfríður Einarsdóttir | Háskólinn í Reykjavík | Grænland | childhood violencetrauma+5 | — | 1h 00m 08s | |
| 2/4/26 | Eyðibyggðir, dagur í lífi stelpu í 9. bekk og Grænland árið 1976✨ | archaeologyhistory+3 | Árni Daníel JúlíussonKarólína Orradóttir | Háskóla Íslands | Grænland | medieval settlementsIceland+5 | — | 59m 19s | |
| 1/30/26 | Almyrkvi á sólu, gervigreind í Davos og dagskrárbreytingar á Rás 1✨ | solar eclipseartificial intelligence+5 | Ragnhildur SigurðardóttirEyrún Magnúsdóttir+2 | Rás 1Samfélagið+3 | SnæfellsnesÍslandi | solar eclipseartificial intelligence+8 | — | 59m 55s | |
| 1/29/26 | Vinnumansal, bráðnun jökla og umhverfismál✨ | human traffickingclimate change+3 | Árni KristjánssonHeiðrún Völu Hilmarsdóttir+1 | Amnesty InternationalLandsvirkjun+4 | — | human traffickingglacier melting+3 | — | 56m 37s | |
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 1/28/26 | Aðlögun að loftslagsbreytingum, hlaðvarp um fornleifafræði og ADHD | Loftslagsbreytingum fylgja ýmsar áskoranir sem þarf að bregðast við, meðal annars þarf að tryggja að húsin okkar standi aukið álag af sér. Það var til umræðu í erindi Elínar Þórólfsdóttur teymisstjóra hjá húsnæðis- og mannvirkjastofnun á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum á dögunum. Við tölum við Elínu í upphafi þáttar. Heiðnar grafir á Íslandi, landnám Reykjavíkur og Grænland og Ameríka eru meðal umfjöllunarefnis Moldvarpsins, hlaðvarps sem fjallar um íslenska fornleifafræði. Fornleifafræðingarnir Arthur Knut Farestveit og Snædís Sunna Thorlacius halda Moldvarpinu úti og ætlum við að spjalla við þau um miðbik þáttar. Í lok þáttar fáum við Eddu Olgudóttur til okkar í sitt reglulega vísindaspjall. Umræðuefnið í dag eru heilsukvillar sem geta fylgt ADHD. En við byrjum á aðlögun að loftslagsbreytingum. Tónlist í þættinum: This must be the place - Talking Heads Time of the season - The Zombies Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir | — | ||||||
| 1/27/26 | Smáforritið Bati, Persónuvernd í 25 ár, ljótt og flott umhverfi | Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira. Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þar sem fjallað verður um stöðu persónuverndar í síbreytilegum heimi. Margt hefur breyst síðan stofnunin var sett á stofn og Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að kíkja við og spjalla um það. Síðan fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - You Can Call Me Al. OYAMA - Vinur vina minna. | — | ||||||
| 1/26/26 | Arkitektúr, 5G og Húsmæðraþættir | Við ætlum að halda áfram að ræða hið byggða umhverfi á Íslandi, eins og við höfum gert talsvert mikið síðustu vikur. Við höfum verið að reyna að skilja betur hvers vegna byggða umhverfið okkar er eins og það er, hvernig okkur líður í því og hvernig við tölum um það. Í dag fáum við sjónarhorn arkítekta, þegar Björg Torfadóttir, framkvæmdarstjóri Arkitektafélags Íslands sest hjá okkur til að ræða þessi mál. 5G er næsta skref í fjarskiptum hér á Íslandi og annars staðar í heiminum. 5G hefur verið kallað límið í fjórðu iðnbyltingunni og á að vera stökk frá fyrirrennurum sínum 2, 3 og 4G. Innviðauppbygging hefur átt sér stað undanfarin ár og stendur nú til að slökkva á síðustu 2G og 3G sendunum til að gera pláss fyrir nýja kerfið. Ólafur Magnússon frá fjarskiptafyrirtækinu NOVA kemur fræðir okkur um þetta á eftir. Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, ætlar að flytja gullmola úr safni RÚV, eins og hún gerir hér í Samfélaginu annan hvern mánudag. Í dag rifjar hún upp gamlan dagskrárlið á Rás 1 sem bar nafnið Húsmæðraþættir. Tónlist í þættinum: Hjálmar - Kindin Einar. Hill, Lauryn - Can't take my eyes off you. Polo and Pan - Canopée. La Havas, Lianne - Disarray. | — | ||||||
| 1/23/26 | Óskarsverðlaunin á Youtube 2029, stefna í áfengis- og vímuvarnarmálum og endurheimt vistkerfa | Nýlega var tilkynnt að Óskarsverðlaunin árið 2029 verða sýnd á Youtube, vídeómiðli í eigu Google. Hvað segir það okkur um umhverfi fjölmiðla og kvikmynda að einn stærsti sjónvarpsviðburður ársins verði sýndur á miðlum tæknirisa? Við ætlum að velta þessu fyrir okkur með Eyrúnu Magnúsdóttur, gervigreindarfréttaritara Samfélagsins, í upphafi þáttar. Á miðvikudaginn voru niðurstöður starfshóps um stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035 birtar til umsagnar á samráðsgátt stjórnvalda. Starfshópurinn hefur verið að störfum í næstum því tvö ár, enda voru verkefni hans stór; að kortleggja stöðu áfengis- og vímuefnamála á Íslandi og bregðast við stefnuleysi sem hefur ríkt í málaflokknum. Kristín I. Pálsdóttir, formaður starfshópsins, sest hjá okkur í dag og ræðir drögin. Gömul stífla í ánni Melsá í Ytri-Hraundal á Mýrum í Borgarfirði var fjarlægð við lok síðasta árs. Markmiðið var að endurheimta vatnasvæði árinnar fyrir fugla og fiska, og gera meðal annars sjóbirtingi kleift að ganga upp ána. Fuglavernd stóð fyrir verkefninu í samstarfi við Land og skóg og Hafrannsóknastofnun. Við hringjum í Jóhannes Guðbrandsson frá Hafrannsóknastofnun við lok þáttar og fáum að heyra af þessu. Tónlist úr þættinum: ASAP Rocky - Punk Rocky (Lyrics!). Svavar Knútur Kristinsson - Soundtracks. Eels - Novocaine for the soul. | — | ||||||
| 1/22/26 | Bómullarkynslóðin endurskoðuð og gervigreindarhæp | Í dag ætlum við að líta um öxl og rifja upp eldri umfjallanir sem hafa staðið tímans tönn. Fyrst flytjum við pallborðsumræður sem við vorum með hér í Samfélaginu í september 2024 þar sem fjallað var um kynslóðir. Við fengum til okkar nokkra góða gesti af nokkrum kynslóðum, spjölluðum við þau um skilning þeirra á kynslóðarmun og meintan ríg milli kynslóða. Síðar í þættinum flytjum við viðtal við írskan gervigreindarsérfræðing sem við fluttum í mars árið 2025. Þar fjölluðum við um hugtakið gervigreindarhæp. | — | ||||||
| 1/21/26 | Mannvæn mannvirki, læsi, lestur og svefnleysi | Hvers vegna líður okkur oft ekki vel í byggða umhverfinu okkar? Þetta er spurning sem margir spyrja sig að þessa dagana, við í Samfélaginu þeirra á meðal. Við ætlum að halda áfram að fjalla um byggðarmál – í dag frá sjónarhorni arkítekta. Arnhildur Pálmadóttir arkítekt ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar til að ræða mannvæn mannvirki, sjálfbærar byggingaraðferðir, fagurfræði, nostalgíu, skipulagsmál, og ýmislegt fleira. Síðan ætlum að ræða lestur og læsi. Hver er munurinn á þessu tvennu? Hvað þarf til að geta lesið sér til gagns? Hvað vitum við í raun og veru um stöðu læsis og lesturs á Íslandi? Sigríður Ólafsdóttir, dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands, ætlar að segja okkur meira. Og í lok þáttar er það hið vikulega vísindaspjall. Edda Olgudóttir kíkir við og segir okkur frá nýlegum rannsóknum á áhrifum svefnleysis á heilann. | — | ||||||
| 1/20/26 | Jöklar, sveitarstjórnarkosningar og kynjakvótalögin | Okjökull fyrrverandi og Hofsjökull eystri eru viðfangsefni vísindagreinar sem birtist nýverið í alþjóðlega vísindaritinu annals of glaciology. Því var lýst yfir fyrir tólf árum að Okjökull væri horfinn. Hofsjökull eystri tórir enn, en talið að hann muni hverfa að óbreyttu eftir þrjátíu og fimm til fjörutíu ár. Eyjólfur Magnússon frá Jarðfræðistofnun háskóla íslands og Hrafnhildur Hannesdóttir frá Veðurstofu Íslands eru meðal höfunda greinarinnar. Við spjöllum við þau í upphafi þáttar. Við hringjum síðan austur á land og heyrum í Jóni Birni Hákonarsyni, formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga. Sambandið er að fara af stað með átak til að auka þátttöku almennings í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Meira um það um miðbik þáttar. Við ræðum síðan jafnrétti kynjanna í lok þáttar. Í fyrra voru liðin fimmtán ár frá setningu laga um hlutföll kynja í stjórnum fyrirtækja. Þau fara fram á að hlutfall kvenna sé þar 40%. Ásta Dís Óladóttir prófessor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands og fleiri birtu grein á dögunum í ritinu Stjórnmál og stjórnsýsla. Þar er farið yfir þróun mála frá setningu laganna fyrir fimmtán árum, áhrif þeirra og viðhorf til frekari aðgerða. Ásta Dís ætlar að segja okkur frá niðurstöðunum á eftir. En fyrst eru það jöklarnir. Tónlist í þættinum: Right Down the Line - Bonnie Raitt Heat Lightning - Mitski | — | ||||||
| 1/19/26 | Sjálfbærni, áhrif loftslagsbreytinga á hönnun samgönguinnviða og safn Annie Leifs | Í dag ætlum við að taka púlsinn á sjálfbærnimálum. Stærsti sjálfbærniviðburður ársins er að nálgast, það er Janúarráðstefna Festu, miðstöðvar um sjálfbærni. Þema ráðstefnunnar í ár er umbreyting, en meðal annars verður fjallað um sjálfbærni á tímum geópólitískrar óvissu, loftslagsbreytinga og hraðrar tækniþróunar. Elva Rakel Jónsdóttir, framkvæmdastýra Festu, kíkir til okkar í upphafi þátta til að segja okkur meira. Gera þarf ráð fyrir loftslagsbreytingum og áhrifum þeirra í hönnun samgönguinnviða hjá Vegagerðinni. Páll Valdimar Kolka Jónsson, verkefnisstjóri umhverfismála, segir að hluti af því sé að sætta sig við óvissu í hönnunarferlinu. Við fáum að heyra betur af því á eftir. Í lok þáttar heimsækjum við Þjóðskjalasafnið. Að þessu sinni ætlar Sigríður Hjördís Jörundsdóttir skjalavörður að sýna og segja frá safni sem kemur frá Annie Leifs, eiginkonu Jóns Leifs tónskálds, dætrum þeirra og fjölskyldu. | — | ||||||
| 1/16/26 | Loðnuleiðangur Hafró og New European Bauhaus | Fimm skip taka þátt í rannsóknarleiðangri Hafrannsóknastofnunar í næstu viku. Í honum á að kanna stöðu loðnustofnsins sem heldur til fyrir norðan landið þessa dagana. Niðurstöður verða nýttar til að veita ráðgjöf um hve mikla loðnu verður heimilt að veiða í ár. Loðnan er verðmætur fiskur og ríkir spenna fyrir niðurstöðunum. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir talar við Guðmund J. Óskarsson sviðsstjóra hjá Hafró um leiðangurinn og loðnuna sjálfa, sem er nokkuð frábrugðin öðrum fisktegundum sem við Íslendingar veiðum. New European Bauhaus er verkefni á vegum Evrópusambandsins þar sem markmiðið er að gera búsetuumhverfi borga og bæja sjálfbærara, fallegra og aðgengilegra. Hér á Íslandi eru byggingar og verkefni sem eru sagðar í anda New European Bauhaus, og sumir vonast jafnvel til þess að verkefnið geti lagað þau vandamál sem við erum að glíma við hér á Íslandi. En hvað er New European Bauhaus? Í dag fáum við til okkar tvo gesti frá félagssamtökunum Grænni byggð – sem taka þátt í verkefni sem tengist New European Bauhaus á Norðurslóðum – til að ræða þetta nánar. Það eru þær Katarzyna Jagodzinska framkvæmdastjóri og Elín Þórólfsdóttir stjórnarformaður Grænni byggðar. Tónlist: Bergman, Natalie - Shine Your Light On Me. Moses Hightower - Búum til börn. Parton, Dolly - These old bones. Girl in Red - Hemingway | — | ||||||
| 1/15/26 | Fornverk í Höfnum, aðlögun að loftslagsbreytingum og sjálfstæði Grænlands og auðlindir | Þegar Sveinn Enok Jóhannsson kom sér upp heimili í Höfnum á Reykjanesskaga vildi hann læra að hlaða og lagfæra gamlar hleðslur í garðinum sínum. Þegar það reyndist erfitt að komast á námskeið brá hann á það ráð að finna sérfræðing, halda sjálfur námskeið og bjóða öðrum að koma og læra með sér. Heyrum af þessu á eftir. Stefán Gíslason, umhverfisstjórnunarfræðingur og pistlahöfundur Samfélagsins, flytur okkur pistil um miðbik þáttar. Í dag fjallar hann um hvað það kostar að aðlaga samfélagið að loftslagsbreytingum. Og í lok þáttar ætlum við að rifja upp viðtal sem var flutt hér í Samfélaginu í mars síðastliðnum. Þá, fyrir næstum því ári síðan, var Grænland í brennidepli vegna yfirlýsinga Bandaríkjaforseta um að leggja landið undir sig. Síðan þá hefur forsetinn margítrekað vilja sinn til að ná yfirráðum yfir Grænlandi, nú af meiri krafti en áður. Í þessu ljósi finnst okkur tímabært að rifja upp viðtal Arnhildar Hálfdánardóttur við Rachael Lornu Johnstone, prófessor í lögfræði og sérfræðing í þjóðarrétti við Háskólann á Akureyri og Illisimatursafik-háskóla á Grænlandi, um sjálfstæði Grænlands og auðlindir. Umsjón: Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist í þættinum: Lovin' Feeling - French 79 Secret Garden - Lamomali Fer sem fer - Moses Hightower No Reason - Big Thief Pivfit Nunat - Sumé | — | ||||||
| 1/14/26 | Reglugerð um ljósvist, sniðganga og áhrif streitu á krabbameinsfrumur | Ljósvist er nú í fyrsta sinn skilgreind í byggingarreglugerð og settar fram kröfur um ásættanleg birtuskilyrði í nýbyggingum. Mannvirkjahönnuðir þurfa þannig að sjá til þess að dagsljós sé ásættanlegt í vistarverum fólks og að skuggavarp og byggingamagn nýrra hverfa hamli því ekki. Ásta Logadóttir verkfræðingur hefur talað fyrir þessum breytingum á reglugerðinni um langt skeið og við ræðum við hana í upphafi þáttar. Um miðbik þáttar setjumst við niður með Ragnhildi Hólmgeirsdóttur og Hólmfríði Jónsdóttur frá íslensku sniðgönguhreyfingunni fyrir Palestínu. Þær ætla að segja okkur frá stöðu sniðgönguhreyfingarinnar í dag, þremur mánuðum eftir að vopnahlé tók gildi á Gaza. Og Edda Olgudóttir sest hér hjá okkur í vísindaspjall í lok þáttar. Hún ætlar að segja okkur frá áhrifum streitu á krabbameinsfrumur. Tónlist úr þættinum: Lisa Ekdahl - Vem vet. Khruangbin - People Everywhere (Still Alive). | — | ||||||
| 1/13/26 | Surtseyjarrannsóknir og farsældarhyggja | Surtseyjarfélagið gaf nýverið út ritið Surtsey Research í sextánda sinn. Ritið er safn vísindagreina um eyna, jarðfræði hennar og lífríki. Tíu manna handvalinn hópur heimsækir Surtsey í júlí ár hvert og sinnir þar rannsóknum sem síðar rata í ritið. Í þætti dagsins spjöllum við við Hólmfríði Sigurðardóttur formann Surtseyjarfélagsins og Bjarna Diðrik Sigurðsson ritstjóra Surtsey Research og gjaldkera félagsins. Og í lok þáttar ræðir Páll Líndal vellíðan og farsældarhyggju í sínum reglubundna pistli. En við byrjum á Surtseyjarrannsóknum. | — | ||||||
| 1/12/26 | Menntamál, stúdentar og safn RÚV | Kerfið hefur alfarið og algjörlega brugðist börnunum okkar sagði Inga Sæland formaður Flokks fólksins og nýorðinn mennta- og barnamálaráðherra um menntakerfið fyrir helgi. Orð Ingu hafa vakið mikla umræðu um málaflokkinn og eru ekki allir sammála um hvort þau máli rétta mynd af stöðunni. Sigrún Blöndal, kennari á Egilsstöðum finnst þau ekki endurspegla það sem hún sér í vinnunni á hverjum degi og vill minna á að á heildina litið gangi börnunum vel. Við spjöllum við Sigrúnu í upphafi þáttar. Og við höldum áfram að ræða menntamálin þegar Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta, kemur til okkar. Hún ætlar að fara með okkur yfir það helsta í hagsmunabaráttu stúdenta, meðal annars rannsóknir á áhrifum námslánakerfisins á stúdenta. Helga Lára Þorsteinsdóttir hefur grafið upp gimstein úr lakkplötusafni RÚV til að spila fyrir okkur. Að þessu sinni er það ódagsett viðtal Baldurs Pálmasonar við Sigríði Eiríksdóttur hjúkrunarkonu. En við byrjum á menntamálunum. Umsjón: Pétur Magnússon og Elsa María Guðlaugs Drífudóttir Tónlist: Lose control - VÖK Old moon - BSÍ | — | ||||||
| 1/9/26 | Konukot í nýju húsnæði, upplýsingaóreiða og gervigreind, Kvæðamannafélagið Iðunn | Konukot, neyðarskýli fyrir heimilislausar konur, opnaði á nýjum stað í Ármúla í gær. Skýlið hafði verið til húsa í Eskihlíð í um tvo áratugi en nýja húsið er stærra og hentar betur þörfum starfseminnar. Þetta eru mikil tímamót fyrir Konukot og Rótina, félagssamtökin sem reka Konukot, og Kristín I. Pálsdóttir, framkvæmdastýra Rótarinnar ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur hvað þetta hefur í för með sér. En það er sífellt erfiðara að greina á milli hvers er satt og logið á samfélagsmiðlum; talað er um vaxandi upplýsingaóreiðu og hugtök eins og netsvik, falsfréttir og rangupplýsingar heyrast gjarnan í þessu samhengi og gervigreindin virðist bara ætla að gera illt verra. Haukur Brynjarsson, og Skúli Bragi Geirdal frá Netvís ætla að kíkja til okkar og fjalla um þetta. Og í lok þáttar ætlar Bára Grímsdóttir, formaður kvæðamannafélagsins Iðunnar, að heimsækja okkur og fara yfir kvæðamálin. Fyrsti viðburður ársins hjá félaginu verður haldinn í kvöld, þar sem gestir geta kveðist á og fræðst um forna vætti og lírukassa. Tónlist úr þættinum: Dina Ögon - Milton. Oyama hljómsveit - The Bookshop. David Bowie - Breaking Glass | — | ||||||
| 1/8/26 | Endurhæfing kvenna í fangelsum og niðurstaða í stóra sundlaugarmálinu í Mývatnssveit | Hópastarf gegnir lykilhlutverki í endurhæfingu kvenna í fangelsum. Í fangelsinu á Hólmsheiði eru haldin Konukvöld alla þriðjudaga þar sem tveir sjálfboðaliðar frá Rauða krossinum hitta konur í afplánun. Markmiðið er að efla tengsl, hæfni í samskiptum og draga úr félagslegri einangrun en margar konur í fangelsum hafa ekki áður fengið tækifæri til að læra heilbrigð samskipti eða byggja upp traust í öruggu umhverfi. Tinna Eyberg Örlygsdóttir, verkefnastjóri hjá Rauða krossinum í verkefninu Aðstoð eftir afplánun, ræðir þessi mál við okkur. Og síðan leiðum við til lykta mál sem við opnuðum fyrir meira en ári síðan, mál sundlaugarinnar í Reykjahlíð í Þingeyjarsveit sem var fjarlægð af óljósum ástæðum fyrir næstum því áratug síðan í óþökk íbúa á svæðinu. Í september 2024 fórum við norður til að fjalla um örlög sundlaugarinnar, en nú, meira en ári síðar, er loksins komin einhvers konar niðurstaða í málið. Við fjöllum meira um það í seinni hluta þáttar. En við byrjum á endurhæfingu kvenna í fangelsum. | — | ||||||
Showing 25 of 477
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart Positions
1 placement across 1 market.
Chart Positions
1 placement across 1 market.
