Hantaveiran, Eistar  vígbúast og hlýindaárið mikla 2025

Hantaveiran, Eistar vígbúast og hlýindaárið mikla 2025

From Spegillinn by RÚV

May 4, 2026 · 20 min · Episode 780

About this episode

The episode discusses the Hantan virus, military readiness in Estonia against Russia, and the record warmth of 2025 in Iceland.

Tiltölulega fágæt en iðulega banvæn veira, Hantan-veiran, dró að líkindum þrjár manneskjur til dauða í hollensku skemmtiferðaskipi, sem væntanlegt er hingað til lands síðar í maí. Hvaða veira er þetta, hversu skæð er hún og er einhver hætta á ferðum ef skipið kemur hingað? Grétar Þór Sigurðsson ræddi við Magnús Gottfreðsson prófessor í smitsjúkdómum. Ævar Örn Jósepsson tók saman. Eina leiðin til að eiga við Rússa er að vígbúast og mæta þeim af hörku segir Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands. Eistar vilja að Norðurlandaþjóðirnar, Eystrasaltsríkin, Pólland, Bretland, Þýskaland og Frakkland myndi varnarbandalag sem verði þess búið að takast á við ógnina frá Rússlandi, sem Eistar eru sannfærðir um að blasi við. Ingólfur Bjarni Sigfússon hitti Tsahkna. 2025 var hlýjasta ár í sögu veðurmælinga á Íslandi, og það þriðja hlýjasta á heimsvísu. Fjölmörg hitamet voru slegin hérlendis og annars staðar í Evrópu, einkum á norðurslóðum, og skógar- og gróðureldar sviðu meira land í Evrópu en dæmi eru um í áreiðanlegum, skráðum heimildum þar um. Ævar Örn Jósepsson segir frá. Umsjón: Ævar Örn Jósepsson Tæknimaður: Mark Eldred

People in this episode

Host: Ævar Örn Jósepsson

Guests: Magnús Gottfreðsson, Margus Tsahkna

Topics covered

  • Hantan-veiran
  • Eistland
  • hlýindaár
  • veðurmælingar
  • Rússland
  • smitsjúkdómar

Keywords

  • Hantan virus
  • Estonia
  • military readiness
  • 2025
  • climate change
  • Iceland
  • disease outbreak

Mentioned in this episode

Organizations: Eistlands

Places: Ísland, Evrópu, Norðurslóðum

More episodes of Spegillinn

Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Spegillinn podcast page.