
102. Grænahlíð - með börnum og fjölskyldum þeirra í liði
From Virðing í uppeldi by medvitadirforeldrar
December 9, 2025 · 38 min
About this episode
Kristín Björg Viggósdóttir heimsækir Grænahlíð og ræðir við geðlækni og iðjuþjálfa um fjölskyldumiðaða geðheilbrigðisþjónustu.
Í þessum þætti heimsækir Kristín Björg Viggósdóttir vinnustað sinn, Grænuhlíð, og ræðir við Önnu Maríu Jónsdóttur geðlækni og Öldu Pálsdóttur iðjuþjálfa um starfsemi miðstöðvarinnar og þá meðferðarnálgun sem þar er unnið eftir. Grænahlíð er fjölskyldumiðað geðheilbrigðisúrræði fyrir 0–25 ára börn og ungmenni, þar sem þverfaglegt teymi vinnur með allri fjölskyldunni út frá áfallamiðaðri og tengslaeflandi nálgun. Í þættinum fjalla þær meðal annars um hversu mikilvægt er að horfa ekki eingöngu á hegðun barnsins heldur á barnið í samhengi við umhverfi, sögu, stuðning og tengsl. Þær ræða einnig gildi öruggra marka, aðferðina að byrja á tilfinningalegri tengingu áður en gripið er til atferlismótandi aðferða, og hvernig athygli er í raun þörf barnsins fyrir tengsl. Einnig kemur fram hvernig merki um hugrof eða ýkt viðbrögð geta vísað til áfalla sem mikilvægt er að taka alvarlega. Að lokum deila þær praktískum ráðum fyrir foreldra, meðal annars því hversu öflug áhrif það getur haft að gefa barninu þrjú skipti á viku þar sem það fær óskipta athygli í hálftíma — til að styrkja tengsl, öryggi og vellíðan.
People in this episode
Guests: Anna María Jónsdóttir, Ölda Pálsdóttir
Topics covered
- geðheilbrigði
- fjölskyldumiðuð þjónusta
- áfallamiðuð nálgun
- tengsl
Keywords
- geðheilbrigðisúrræði
- þverfaglegt teymi
- tilfinningaleg tenging
- atferlismótandi aðferðir
Mentioned in this episode
Places: tengslaeflandi nálgun
More episodes of Virðing í uppeldi
- 106. Mataruppeldi og að fyrirbyggja vanda · March 20, 2026 · 1h 48m
- 105. Um uppeldi stráka með Rögnu Guðnýju · February 10, 2026 · 1h 4m
- 104. Skjáuppeldi - nú með Skúla Braga · January 15, 2026 · 1h 23m
- 103. Skjáuppeldi - Anna Laufey Stefánsdóttir · December 16, 2025 · 1h 19m
- 101. Uppeldi ungra barna ⎸Nokkur lykilatriði að mati Birnu, Dagnýjar og Laufeyjar · November 11, 2025 · 1h 13m
- 100. þáttur - Viðkvæmar og viljasterkar · October 7, 2025 · 1h 3m
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Virðing í uppeldi podcast page.