
Saga Dröfn: „Það hrundi allt eftir að hann lamdi mig“
From Fókus by DV
January 23, 2026 · 56 min · Season 6 · Episode 3
About this episode
Saga Dröfn Haraldsdóttir shares her experiences with sexual and domestic violence and her interactions with the Icelandic legal system.
Saga Dröfn Haraldsdóttir er gestur vikunnar í Fókus, viðtalsþætti DV, þar sem hún stígur fram og segir sögu sína af kynferðis- og heimilisofbeldi – og upplifun sinni af því þegar íslenska réttarkerfið brást henni, ekki einu sinni heldur tvisvar. Með henni í þættinum er kærasti hennar, Ingólfur Valur Þrastarson, sem veitir henni stuðning á meðan hún ræðir um þung og viðkvæm málefni. Varað er við lýsingum á ofbeldi og afleiðingum þess. Saga var um fimmtán ára gömul þegar hún kærði nauðgun. Gerandi hennar var dæmdur í héraðsdómi en síðar sýknaður í Hæstarétti, þrátt fyrir vitnisburði sem bentu til þess að hún hefði ekki getað veitt samþykki. Henni fannst kerfið hafa brugðist sér og eftir sat hún án réttlætis. Í fyrra ákvað hún að treysta kerfinu á ný og kærði fyrrverandi kærasta sinn fyrir heimilisofbeldi. Hún segir að hún hafi lagt fram upptökur, myndefni og áverkavottorð sem sönnunargögn og talið það vera nóg. En nýverið fékk hún þær fréttir að rannsókn málsins hefði verið felld niður þar sem brotið var talið minniháttar og fyrnt. Saga og Ingólfur, eða Ingó eins og hann er kallaður, hafa verið saman í rúmt ár. Þau framleiða bæði myndefni fyrir OnlyFans og eru ötulir talsmenn…
People in this episode
Host: DV
Guest: Saga Dröfn Haraldsdóttir
Topics covered
- sexual violence
- domestic abuse
- Icelandic legal system
- personal story
- advocacy
Keywords
- sexual violence
- domestic abuse
- Iceland
- legal system
- advocacy
- personal story
Explore listener stats, chart rankings, contacts and more on the Fókus podcast page.