
Sögur úr raunveruleikanum
Í safnvarpinu Sögur úr raunveruleikanum leita dagskrárgerðarmenn uppi sannar sögur úr íslenskum samtíma. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information.
Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Total monthly reach
Based on 1 signal.
Built from
By chart position
- 🇮🇸Iceland · NewsHOME#52.4K to 13K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
2.4K to 13K🎙 Weekly cadence·14 episodes·Last published 1mo ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
4.9K to 26K🇮🇸100% - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
1.9K to 10K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
| Date | Episode | Description | Length | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 9/22/26 | Þorpararnir sem umkringdu ráðhúsið | Við erum mætt til Akureyrar til þess að elta uppi pólitíska öskubuskusögu blikkara úr Þorpinu.Manns sem þótti ekki nógu fínn fyrir Framsóknarflokkinn, en stofnaði í staðinn stjórnmálaflokk sem varð ekki bara ráðandi afl í bænum heldur er hann nú þriðja elsta stjórnmálaafl á Íslandi og hefur í bráðum tvo áratugi verið í meirihluta.Við reynum að fá að vita hvort árangur L-listans sýni að það sé hvorki nauðsynlegt né árangursríkt að eiga stóran, sterkan frænda í Reykjavík, sem sækja þurfi til samþykki eða aðstoð.Umsjón: Helgi Seljan Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 55m 03s | ||||||
| 9/7/26 | Mannshvörfin í Himalaja | Tveir færustu fjallamenn landsins lögðu í örlagaríkan leiðangur á einn hæsta tind heims í Himalajafjöllunum í Nepal árið 1988. Í leiðangrinum gerðust atburðir sem aldrei hafa verið upplýstir að fullu. Röð tilviljana gerði það svo að verkum að þetta gamla mál kom aftur upp á yfirborðið fyrir nokkrum árum. Viðmælendur: Rúnar Guðbjartsson, Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, Kristinn Steinar Kristinsson, Hafdís Guðjónsdóttir, Jón Geirsson, Leifur Örn Svavarsson og Steve Aisthorpe.Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir og Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 49m 55s | ||||||
| 7/2/26 | Álögin á Vatnsenda 3.þáttur | Í þessum þætti færum við okkur inn í nútímann og skoðum hvað tvær yngstu kynslóðir Vatnsendaerfingja hafa þurft að glíma við. Því það er eins og það verði sífellt erfiðara að bera ábyrgð á þessu verðmæta landi. Kvaðirnar og málaferlin hafa stundum yfirskyggt kostina við arfinn.Hinn 23 ára gamli Magnús Pétur er nú orðinn þungamiðja í flóknum málaferlum og þarf að stunda búskap í miðri byggð í Kópavogi til að missa ekki jörðina frá sér.Við sögu koma Þórður Bragason vinur Þorsteins Hjaltested, Vilborg Hjaltested systir Þorsteins, Víðir Smári Petersen prófessor í eignarrétti, Guðjón Ármannsson fyrrum lögmaður Kópavogsbæjar, Pálmi Þór Másson bæjarritari Kópavogs og Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.Dagskrárgerð: Þóra TómasdóttirHljóðblöndun: Kormákur Marðarson Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 50m 16s | ||||||
| 6/16/26 | Álögin á Vatnsenda 2.þáttur | Fyrir síðustu aldamót fóru bæði Kópavogur og Reykjavík að ásælast Vatnsendajörðina. Erfingjar jarðarinnar urðu þá óvænt lykilviðsemjendur stjórnmálamanna sem vildu reisa þar fjölmenna byggð. 90 ára gömul erfðaskrá kom hins vegar í veg fyrir að hægt væri að selja jörðina. Gunnar Birgisson, þáverandi bæjarstjóri í Kópavogi, ákvað að höggva á hnútinn með umdeildum samningi við Vatnsendaerfingjann. Í þessum þætti er fjallað um tímabilið sem fjölmenn byggð reis á Vatnsenda og átökin sem urðu á bæjarskrifstofum Kópavogs, í Hjaltested-ættinni og dómsölum landsins. Við sögu koma meðal annars Guðjón Ármannsson, Víðir Smári Petersen, Guðríður Eldey Arnardóttir, Ármann Kr. Ólafsson, Gunnar Birgisson, Ásgeir Þór Davíðsson, Magnús Hjaltested, Þorsteinn Hjaltested, Magnús Pétur Hjaltested og Kristrún Ólöf Jónsdóttir.Dagskrárgerð: Þóra TómasdóttirTónlist: Atli Örvarsson (Úr kvikmyndinni Hrútum)Hljóðblöndun: Markús Hjaltason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 52m 16s | ||||||
| 6/16/26 | Álögin á Vatnsenda 1.þáttur | Áratugum saman hefur Hjaltested-ættin tekist á um hver eigi og megi búa á hinni flennistóru Vatnsendajörð sem umlykur Elliðaárvatn í Kópavogi. Hatrammar deilur hafa sprottið upp vegna umdeildrar erfðaskrár sem eigandi jarðarinnar gerði 1938. Erfðaskráin færði útvöldum ómæld auðæfi en lagði líka á þá kvaðir sem verður sífellt erfiðara að framfylgja. Enn í dag ræður 90 ára erfðaskrá för á framtíðar byggingarlandi höfuðborgarsvæðisins og þvingar rúmlega tvítugan erfingja til að stunda búskap inni í byggð. Dagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 38m 29s | ||||||
| 5/6/26 | Hilmar Veigar um Elon Musk og Demis Hassibis | Þegar Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðilinn X að hann ætti í viðræðum við skapara Eve Online um samvinnu að gervigreindartölvuleik, þá óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar Pétursson, einn stofnenda leiksins. Þegar Hilmar var loks tilbúinn í viðtal kom hann með allt aðra og óvænta sögu. Í þessum þætti segir Hilmar Veigar frá því sem gerðist bak við tjöldin áður en fyrirtækið sem hann stýrir var selt fyrir 15 milljarða króna. Hann segir frá óvenjulegum samskiptum sínum við Elon Musk, en líka við aðra og ekki síður lítríka einstaklinga úr hópi fremstu tæknifrömuða heims. Meðal annars, nóbelsverðlaunahafa í efnafræði, Demis Hassabis. Umsjón: Þóra Tómasdóttir. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 52m 01s | ||||||
| 5/5/26 | Kveikur: „Plain“ konur eins og ég | Í dag heyrum við frásögn konu sem tók þá afdrifaríku en sjálfstæðu ákvörðun að selja aðgang að líkama sínum. Um 20 ár eru liðin. Þó tími hennar í vændi hafi aðeins varað um sex mánaða skeið hefur hann markað líf hennar allar götur síðan. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 28m 09s | ||||||
| 4/27/26 | Fjölskyldan á Edition-hótelinu | Þrítug kona og karlmaður á sextugsaldri fundust látin á Edition-hótelinu í Reykjavík í júní 2025. Móðir konunnar og eiginkona mannsins sagði lögreglu að fjölskyldan hafi komið til Íslands gagngert til þess að svipta sig lífi.Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og sögu fjölskyldunnar. Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 37m 07s | ||||||
| 4/14/26 | Að deyja í einsemd | Þegar fólk deyr í heimahúsi eða bara einhvers staðar annars staðar en á sjúkrahúsi þá er tæknideild lögreglunnar kölluð á vettvang. Tæknideildin kannar hvort andlátið hafi borið að með náttúrulegum hætti. Einstaka sinnum gerist það að tæknideildin mætir á vettvang þar sem lík hefur legið lengi. Slíkt gerist sem betur fer sjaldan en árið 2025 fannst lögreglumönnum eins og það væri einhver breyting þar á. Þeir töldu sig koma að fleiri einstæðingum en áður. Rætt er við lögreglumennina Guðmund Þ. Tómasson og Ragnar Jónsson. Við heimsækjum Ingvar Stefánsson og Helenu Björk Magnúsdóttur hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur og Emilíu Jónsdóttur félagsráðgjafa hjá Útfararstofu kirkjugarðanna. Umsjón: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 41m 27s | ||||||
| 4/3/26 | Krossfest: Föstudagurinn langi | Á föstudaginn langa 2025 ferðaðist Sigyn Blöndal til San Fernando á Filippseyjum. Bærinn er þekktastur fyrir það að á föstudaginn langa ganga hundruðir manna um götur bæjarins í húðstrýkingum en þar hefur einnig Ruben Enaje látið krossfesta sig síðan 1986. Hann er á leiðinni á krossinn í 36. sinn og Sigyn fær tækifæri til að hanga með þeim krossfesta - ekki á krossinum heldur spjölluðu þau saman undir skugga mangótrjáa, innan um Maríulíkneski og krossinn sjálfan. Við ferðumst saman á staðinn, heyrum af upplifun þeirra sem voru á staðnum og reynum að fá svar við spurningunni, af hverju? Viðmælendur: Ruben Enaje Prófessor Xiao Chua Pétur Guðmann GuðmannssonHugo GoodsonMichael Magee Lestur: Ruben Enaje: Björn Þór SigbjörnssonXiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonHugo Goodson: Jóhannes ÓlafssonMichael Magee: Atli Már SteinarssonDagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 51m 20s | ||||||
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 4/2/26 | Krossfest: Skírdagur | Það kannast flestir Íslendingar við árlegu fréttina á föstudaginn langa um krossfestingar á Filippseyjum. Við horfum og afgreiðum sem galið, sem klikkað - eitthvað sem við myndum aldrei gera. En hvað býr að baki? Hvað gerist þegar við spyrjum af hverju? Hvernig gerist það að karlmenn á Filippseyjum ganga um götur í húðstrýkingum og láta jafnvel krossfesta sig á föstudaginn langa. Sigyn Blöndal var á Filippseyjum um páskana 2025 og kynnti sér málið sem er hægt að skoða frá mörgum hliðum. Í þessum fyrri þætti ferðumst við um götur Manila á skírdag 2025 og hittum bæjarbúa sem syngja um píslargöngu krists og fylgjumst með krossfestingaræfingu. Viðmælendur: Prófessor Xiao Chua Marj EinarssonRuben Enaje Lestur: Xiao Chua: Hafsteinn VilhelmssonMarj Einarsson: Ástrós Signýjardóttir Dagskrárgerð, framleiðsla og hljóðvinnsla: Sigyn Blöndal Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 49m 01s | ||||||
| 3/22/26 | Eftir að allt varð svart | Þrír létust þegar lítil flugvél brotlenti við Sauðahnjúka á Austurlandi sumarið 2023. Um borð í vélinni voru náttúruvísindamennirnir Skarphéðinn Þórisson og Fríða Jóhannesdóttir auk flugmannsins Kristjáns Orra Magnússonar.Í þættinum er athyglinni beint að þeirri einstöku þekkingu á hreindýrum og náttúru sem fórst með flugvélinni. Þóra Tómasdóttir og Gígja Hólmgeirsdóttir ræddu við samferðafólk vísindamannanna ári eftir flugslysið.Tónlist: Johan Söderqvist og Shingeru UmbayashiDagskrárgerð: Þóra Tómasdóttir Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 44m 18s | ||||||
| 3/2/26 | Vítahringur Margrétar Löf - 2. þáttur | Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar.Í þessum þætti segir hálfbróðir Margrétar Löf frá sinni upplifun af fjölskyldulífinu. Rætt er við lögmann Margrétar, Sigurð G. Guðjónsson, lögfræðiprófessorinn Hafstein Dan og hestamanninn Sigurbjörn Bárðarson. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Markús Hjaltason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 47m 45s | ||||||
| 2/23/26 | Vítahringur Margrétar Löf - 1. þáttur | Langur aðdragandi var að því að Margrét Halla Hansdóttir Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum í Súlunesi í apríl 2025. Við meðferð málsins fyrir Héraðsdómi Reykjaness teiknaðist upp djúpstæður fjölskylduvandi sem varð sífellt óviðráðanlegri. Vandi sem virtist hverfast um andlegt ástand Margrétar. Í þáttunum er rætt við Margréti, samferðafólk hennar og verjanda. Umsjón: Þóra TómasdóttirTæknimaður: Mark Eldred Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 56m 26s | ||||||
| 2/17/26 | Kveikur: Börnin í Bakkakoti | Samhliða umfjöllun Kveiks um bæinn Bakkakot fyrir tveimur vikum síðan, stigu níu menn fram sem kröfðust rannsóknar á ofbeldi sem þeir segjast hafa verið beittir þar sem börn. Í dag hefur tala þeirra meira en tvöfaldast.Í aðdraganda annars þáttar Kveiks um málið heyrum við viðbrögð eins viðmælanda þeirra við umfjölluninni, heyrum sögu manns sem var sóttur í Bakkakot af móður sinni eftir skamma en yfirþyrmandi dvöl, og ræðum við Jóhann Bjarna Kolbeinsson, fréttamann Kveiks, um dagskrárgerðina.Dagskrárgerð: Anna Marsibil ClausenTæknimaður: Jón Þór Helgason Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 54m 08s | ||||||
| 2/16/26 | Ráðgátan um horfna fiðluleikarann | Írski fiðluleikarinn Sean Bradley hvarf sporlaust frá Íslandi 2018. Leit að honum hefur enn engan árangur borið. Þóra Tómasdóttir rekur atburðarásina og grunsemdir lögreglunnar á Suðurlandi. Þátturinn var upprunalega sendur út í nokkrum köflum í hlaðvarpinu Þetta helst. Umsjón: Þóra TómasdóttirTónlist: Philip Glass Hosted on Acast. See acast.com/privacy for more information. | 42m 37s | ||||||
Showing 16 of 14
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart history for Sögur úr raunveruleikanum
Peaked at #5 in IS, top 10 in 1 of 1 tracked market, currently #5 in IS.
| Market | Genre | Peak | Current | Trend |
|---|---|---|---|---|
| IS | — | #5 | #5 | — |
Chart Positions
1 placement across 1 market.
Chart Positions
1 placement across 1 market.