
Skuggavaldið
Í Skuggavaldinu ræða prófessorarnir Eiríkur Bergmann og Hulda Þórisdóttir saman um hvaðeina er viðkemur samsæriskenningum. Samfara örum samfélagsbreytingum hefur samsæriskenningum hratt vaxið fiskur um hrygg, svo sem í k...
Insights from recent episode analysis
Audience Interest
Podcast Focus
Publishing Consistency
Platform Reach
Insights are generated by CastFox AI using publicly available data, episode content, and proprietary models.
Total monthly reach
Based on the show's feed history.
Built from
By chart position
- 🇮🇸Iceland · Society & Culture#71.7K to 15K
- Per-Episode Audience
Est. listeners per new episode within ~30 days
1.7K to 15K🎙 Weekly cadence·50 episodes·Last published 1w ago - Monthly Reach
Unique listeners across all episodes (30 days)
3.3K to 30K🇺🇸71%🇮🇸29% - Active Followers
Loyal subscribers who consistently listen
1.8K to 17K
Market Insights
Platform Distribution
Reach across major podcast platforms, updated hourly
Total Followers
—
Total Plays
—
Total Reviews
—
* Data sourced directly from platform APIs and aggregated hourly across all major podcast directories.
| Date | Episode | Description | Length | ||||||
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 10/12/26 | #52 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar - seinni þáttur | Voru leiðtogar Rauðu herdeildanna myrtir af vestur-þýska ríkinu inni í Stammheim-fangelsinu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar rekja Eiríkur og Hulda hina blóðugu lokakafla sögunnar um Baader-Meinhof gengið og ræða fangavistina í Stammheim, dauða Meinhof, Þýska haustið 1977, flugránið í Mogadishu og hina dularfullu nótt þegar Baader, Ensslin og Raspe fundust látin í klefum sínum. Var um samhæfð sjálfsvíg að ræða – eða ríkismorð? Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 54m 08s | ||||||
| 9/28/26 | #51 - Ulrike Meinhof og Rauðu herdeildirnar í Þýskalandi - fyrri þáttur | Var Vestur-Þýskaland eftirstríðsáranna í raun fasistaríki í dulargervi? Eiríkur og Hulda rekja vegferð Ulrike Meinhof inn í Rauðu herdeildina, RAF, og skoða þá heimsmynd sem varð til þess að hópur ungra róttæklinga taldi vopnaða baráttu ekki aðeins réttlætanlega heldur nauðsynlega. Fjallað er um óuppgert uppgjör við nasismann, morðið á Benno Ohnesorg, Andreas Baader og Gudrun Ensslin og örlagastundina þegar Meinhof yfirgaf borgaralegt líf sitt og fór í felur. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 53m 54s | ||||||
| 9/14/26 | #50 - Epstein og samsæriskenningarnar - seinni þáttur | Stytti Jeffrey Epstein sér aldur, eða var honum hjálpað við það? Í seinni þætti af tveimur um Epstein-málið ræða Hulda og Eiríkur hvernig frasinn „Epstein drap sig ekki“ varð að alþjóðlegri samsæriskenningu eftir að hann fannst látinn í fangaklefa sínum árið 2019. Fjallað er um njósnakenningar tengdar CIA, Mossad og Kreml, ný skjöl sem nýlega hafa komið í ljós, dularfull dauðsföll í Frakklandi og af hverju Epstein-málið heldur áfram að skaka stjórnmálin, sjö árum eftir andlát hans. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 56m 07s | ||||||
| 8/31/26 | #49 - Epstein 1: Ris, fall og óútskýrð auðæfi | Jeffrey Epstein braut kynferðislega á fjölda stúlkna og ungra kvenna árum saman en naut á sama tíma verndar valdafólks og undarlega vægrar meðferðar réttarkerfisins. Hulda og Eiríkur rekja ævi hans, allt frá æskunni í verkamannahverfi í Brooklyn, til lúxulífs og loks fangaklefans þar sem hann dó. Fyrri þáttur af tveimur um þetta mál sem skekið hefur samfélagið og hefur ekki enn verið leitt að fullu til lykta. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 49m 09s | ||||||
| 8/17/26 | #48 - Evrópusambandið og sögurnar um það | Er ESB Sovétríkin endurfædd? Eða “Fjórða ríkið”? Eiríkur og Hulda rekja hvernig þunglamalegt evrópskt skrifræði verður að uppsprettu lygilegustu hrollvekja, allt frá meintu sæti Andkrists á Evrópuþinginu til áforma Davos-elítunnar um mannfjöldaskipti. Loks er rýnt í hvernig þessar alþjóðlegu flökkusögur fá staðbundinn blæ á Íslandi, þar sem sambandið er teiknað upp sem myrkt skuggavald sem hyggst stela fiskinum, ræna orkunni og skikka ungmenni önnur en íslensku elítunnar í herinn. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 57m 58s | ||||||
| 8/3/26 | #47 - Hvað er eiginlega í gangi á Svalbarða? | Var dómsdagshvelfingin á Svalbarða reist svo heimselítan gæti náð stjórn á matvælaframleiðslu heimsins? Hulda og Eiríkur rýna inn í frosna fjallshlíð þar sem fræ frá um hundrað löndum eru geymd. En á þessum sama ísilagða eyjaklasa kraumar líka annað og raunverulegra njósnastríð, þar sem rússneskir togarar sigla yfir sæstrengi sem rofna á dularfullan hátt. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 57m 48s | ||||||
| 7/20/26 | #46 - Stóra Tartaría - heimsveldið sem hvarf í leðjuflóði | Drukknaði eitt stærsta heimsveldi mannkynssögunnar í leðju og var kjölfarið þurrkað út úr öllum sögubókum? Hulda og Eiríkur ræða söguna um Stóru Tartaríu, eina furðulegustu og áhrifamestu samsæriskenningu alnetsins. Við rekjum slóðina frá hugmyndum virtasta stærðfræðings Rússlands í Moskvu, yfir í gamlan landafræðilegan misskilning Evrópumanna, og alla leið til 580 þúsund manna Facebook-hóps þar sem menn leita að týndum jarðhæðum stórborga. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected]. | 55m 13s | ||||||
| 7/6/26 | #45 - Útskiptin miklu – seinni þáttur | Umturnaði samsæriskenningin um útskiptin miklu Vestrænum stjórnmálum varanlega? Í seinni þætti af tveimur um útskiptin miklu ræða Eiríkur og Hulda hvernig óttinn um „Evrarabíu“ færðist úr afviknum kimum internetsins og beint inn í hjarta stjórnmálanna í kjölfar áfalla á borð við 11. september, fjármálahrunið og flóttamannakrísuna. Kíkt er ofan í vélarúm popúlismans, hvernig hefðbundnir flokkar hafa brugðist við, og að lokum veltum við upp sálfræðinni. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 53m 40s | ||||||
| 6/22/26 | #44 - Útskiptin miklu - fyrri þáttur | Standa íslamistar í Miðausturlöndum að því að skipta út kristnu fólki í Evrópu fyrir múslima? Jafnvel með aðstoð evrópskrar elítu? Þessi ótti er kjarninn í samsæriskenningunni um Evrarabíu og „útskiptin miklu“ (The Great Replacement). Í fyrri þætti af tveimur rekja Eiríkur og Hulda tilurð sögunnar og kryfja hvernig slíkar samsæriskenningar færðust af myrkum jaðri internetsins og urðu að hversdagslegu stjórnmálavopni. Rætt er um Le Pen í Frakklandi og Glistrup í Danmörku og rýnt í það hvernig útskúfuð kynþáttahyggja fór í spariföt og sneri aftur sem „kynþáttafjölhyggja“ til að gera hræðsluáróður boðlegan á ný. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 53m 52s | ||||||
| 6/8/26 | #43 - Tuskegee-rannsóknin: Þegar svart fólk var blekkt til dauða í nafni vísinda | Var svart fólk dregið til dauða í nafni vísindanna? Árið 1932 bauð bandaríska ríkið fátækum, svörtum bændum ókeypis „lækningu“ við „slæmu blóði“ sem varð upphafið að fjörutíu ára martröð. Hulda og Eiríkur rekja sögu Tuskegee-rannsóknarinnar, þar sem læknar meinuðu mönnum vísvitandi um lífsbjargandi lyf við sárasótt. Við kryfjum þetta raunverulega samsæri yfirvalda, mál sem skapaði djúpstætt vantraust og elur enn þann dag í dag á nýjum samsæriskenningum. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 45m 37s | ||||||
Want analysis for the episodes below?Free for Pro Submit a request, we'll have your selected episodes analyzed within an hour. Free, at no cost to you, for Pro users. | |||||||||
| 5/25/26 | #42 - Fljúgandi furðuhlutir - seinni þáttur | Gangast ráðamenn nú við torkennilegum fyrirbærum í háloftunum? Í síðari þætti um fljúgandi furður rýna Hulda og Eiríkur í hvernig yfirvöld hafa færst frá því að mæta öllum tilkynningum með afneitun - sem einmitt kynti undir langsóttum samsæriskenningum um að stjórnvöld leyni heimsókn geimvera - yfir í að viðurkenna nú takmarkaða þekkingu sína á ýmsu því sem örðugt er að greina. Það þýðir þó ekki að menn trúi nú á tilvist geimvera en samsæriskenningar nærast einmitt á slíkri óvissu, líkt og rakið er í þættinum. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 59m 31s | ||||||
| 5/11/26 | #41 - Geimverur fyrri þáttur | Leyna yfirvōld fljúgandi furðuhlutum frá fjarlægum hnöttum? Hulda og Eiríkur rekja sögu frásagna af fljúgandi furðuhlutum, afvegaleiðingu slíkra frásagna og til þess að bandarísk stjórnvöld viðurkenna nú að ekki sé hægt að útskýra allt sem sést hefur á himni. Sjónum er beint að því hvernig ríkið nýtti Robertson-nefndina á 6. áratugnum til að gera umræðuna „hallærislega“ og hvernig dularfull starfsemi í Area 51 í Nevada kynti enn frekar undir grunsemdum. Loks er rifjað upp þegar hópur Íslendinga beið eftir geimverum á Snæfellsjökli árið 1993. Með því að flétta saman stjórnmálasögu og sálfræði er leitað svara við því hvers vegna þessi fyrirbæri eru loks tekin alvarlega eftir áratugi af þöggun og háði. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 54m 27s | ||||||
| 5/6/26 | #40 - Neró: Harðstjóri eða fórnarlamb slaufunarmenningar? | Spilaði Neró fiðlu á meðan Róm brann? Við kryfjum mýtur um móðurmorð, brennuna miklu og hvernig nafn keisarans varð að hinu dularfulla dulmáli 666. Var hann andkristur sjálfur eða fórnarlamb ríkisstyrktrar ófrægingarherferðar? Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 59m 47s | ||||||
| 4/13/26 | #39 - Loftárás, listaverkarán og sprengjugerð á tímum átakanna á Norður-Írlandi: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, seinni hluti | Hvernig knúði kúgun Breta á Norður-Írlandi enska yfirstéttarkonu til þess að leggja frá sér tebollann og stökkva ofan í skotgrafir ÍRA? Í þessum síðari þætti af tveimur um Rose Dugdale ræða Eiríkur og Hulda um aðgerðirnar sem fleyttu Rose í fremstu víglínu átakanna. Við fylgjumst með henni ræna þyrlu til að gera loftárás á lögreglustöð, skipuleggja stærsta listaverkarán Írlandssögunnar til að knýja fram pólitískar kröfur og hanna mannskæð vopn á borð við hina furðulegu en banvænu „Kex-vörpu“. Um leið er varpað ljósi á The Troubles, hin blóðugu og mannskæðu átök sem skóku Norður-Írland og Bretlandseyjar á síðustu öld. Skuggavaldið er í samstarfi við bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghúsog veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 47m 21s | ||||||
| 3/30/26 | #38 - Frá höllum drottningar til skotgrafa ÍRA: Ótrúleg saga hefðarmærinnar Rose Dugdale, fyrri hluti | Hvað fær enska hefðarmey til að snúa baki við uppruna sínum og gerast skæruliði ÍRA? Rose Dugdale ólst upp í bresku yfirstéttinni, en andúð á stéttakerfinu og arðráni nýlendustefnunnar dró hana inn í blóðug átök á Norður-Írlandi. Eftir hrylling Blóðuga sunnudagsins árið 1972 rauf hún öll tengsl við fjölskyldu sína og valdi vopnaða byltingu. Í þessum fyrri þætti rekja Eiríkur og Hulda ótrúlega sögu yfirstéttarstúlkunnar sem gerðist hryðjuverkamaður, og varpa um leið ljósi á hin mannskæðu átök á Norður-Írlandi á síðustu öld sem þekkt eru sem The Troubles. Skuggavaldið er í samstarfi við, bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veigingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 52m 45s | ||||||
| 3/16/26 | #37 - Sölumaður óttans: Alex Jones | Hvernig fór Alex Jones að því að græða milljarða á samsæriskenningum? Í þessum þætti Skuggavaldsins rekja Hulda og Eiríkur þróun upplýsingahernaðar í samtímanum og rýna í feril sölumanns óttans“ sem vopnavæddi upplýsingaóreiðu og ruddi brautina fyrir nýja tegund popúlismans. Við skoðum „viðskiptamódel óttans“ þar sem bætiefni og neyðarbúnaður eru seld sem vörn gegn samsærum ríkisins, og ræðum Sandy Hook-harmleikinn þar sem siðlaust leikhús mætti raunverulegum sársauka og sögulegum skaðabótakröfum. Fjallað er um hlutverk Jones sem „ísbrjóts“ fyrir jaðarhugmyndir sem rata inn í almannarýmið og hvort kakkalakki upplýsingahernaðarins sé í raun fallinn eða einfaldlega mættur á nýjan vettvang. Skuggavaldið er í samstarfi við , bílaumboðið Öskju, veiðibúðina Vesturröst, Borg Brugghús og veitingahúsið Snaps. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 44m 11s | ||||||
| 3/2/26 | #36 - Rothschild-goðsögnin – stóra skrímslið í huga samsæriskenningasmiða | Ætlar Rothschild-ættin að sölsa allan heiminn undir sig? Í þessum síðari þætti af tveimur um hina frægu Rothschild-fjölskyldu skoða Eiríkur og Hulda hvernig ættin varð að holdgervingi hins illa og talin stjórna bandaríska seðlabankanum, sitja á toppi Illuminati-píramídans og stýra hinni Nýju heimsskipan. Undanfarin ár hafa sögurnar orðið enn fáránlegri og ættin hefur verið sökuð um að eiga einkaleyfi á Covid-19 og stjórna skógareldum með geimleiserum. Þá er blákaldur veruleikinn sá að þessi gamla evrópska bankaætt á ekki roð í risa á borð við BlackRock og Elon Musk. Skuggavaldið er í samstarfi við Öskju, Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 44m 47s | ||||||
| 2/16/26 | #35 - Rothschild-fjölskyldan — raunveruleikinn á bak við goðsögnina | Stýrir Rothschild-fjölskyldan seðlabönkum og styrjöldum? Eiríkur og Hulda ræða eitt stærsta nafnið í heimi samsæriskenninga: Rothschild-ættina. Sögur segja að fjölskyldan eigi helming auðæfa jarðar og fjármagni báðar hliðar í styrjöldum. En hver er raunveruleikinn? Í þessum þætti ferðumst við aftur til ársins 1760, skoðum hvernig ættin breiddi úr sér í fjármálalífi Evrópu og kryfjum hina lífseigu mýtu um orrustuna við Waterloo. Í þessum fyrri þætti af tveimur er kafað ofan í hina raunverulegu sögu fjölskyldunnar, en goðsagnirnar og samsæriskenningarnar verða teknar fyrir í þeim næsta. Skuggavaldið er í samstarfi við Borg brugghús og veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar um efni og hugmyndir um samstarf sendist á [email protected] | 40m 59s | ||||||
| 2/2/26 | #34 - Leyndardómar flugvallarins í Denver | Er heil hulduborg undir Denver-flugvelli, einskonar dómsdagsbyrgi, sem hýsa mun heimselítuna á efsta degi? Eiríkur og Hulda fjalla um hlaðborð samsæriskenninga tengdar flugvallarbyggingunni og hvernig stjórnendur hans sneru vörn í sókn og nýttu brjálæðislegar sögusagnirnar sér til framdráttar í stað þess að þagga niður í þeim. Sagt er frá því hvernig byggingaskilti um „felustað eðlufólksins“ og talandi ufsagrýlur urðu svar við þrálátum orðrómi um dómsdagsbyrgi og leynigöng. Einnig er kafað ofan í jarðveginn sem þessar sögur spruttu úr: Allt frá stjarnfræðilegri framúrkeyrslu og biluðu farangurskerfi til bláa hestsins „Blucifer“ og apokalyptískra veggmynda sem sumir þykja boða nýja heimsskipan. | 45m 35s | ||||||
| 1/19/26 | #33 - Havana-heilkennið, seinni þáttur | Var háleynilegu hljóðvopni beitt gegn útsendurum Bandaríkjastjórnar á Kúbu? Í síðari þætti Skuggavaldsins um Havana-heilkennið rekjum við hvernig dularfull veikindi fóru að greinast um allan heim. Hulda og Eiríkur rýna í kenningar um örbylgjuárásir og rússnesk leynivopn sem standast illa skoðun, en skoðum líka hljóðvopn sem reyndust stundum vera tístandi krybbur. Gæti skýringin verið geðræn hópsýkingu þar sem streita og óvissa framkalla raunverulegan sársauka? Rýnt er í frásögn fórnarlamba sem hafa misst heilsu og starf sitt og nýjar skýrslur sem draga árásar-kenninguna í efa og hvernig klaufaleg viðbrögð stjórnkerfisins urðu að frjósömum jarðvegi fyrir samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samstarfi við veiðibúðina Vesturröst. Ábendingar sendist á [email protected] | 44m 16s | ||||||
| 1/5/26 | #32 - Havana heilkennið – fyrri þáttur | Beittu stjórnvöld á Kúbu, eða jafnvel í Rússlandi, leynilegu hátæknivopni til að slá bandaríska sendimenn í Havana út af laginu? Óútskýrð veikindi bandarískra diplómata seint á árinu 2016 urðu upphaf að einni undarlegustu og umdeildustu pólitísku ráðgátu samtímans. Eiríkur og Hulda rekja hér sögu hins svokallaða Havana-heilkennis í sögulegu, pólitísku og sálfræðilegu samhengi allt frá byltingu Castros og áratugalangri tortryggni, í gegnum varfærna þíðuna í tíð Obama, og til hins snögglega afturhvarfs þegar Trump tók við völdum. | 59m 55s | ||||||
| 12/22/25 | #31 - Er jólasveinninn til? | Er sagan um jólasveininn eitt útbreiddasta samsæri mannkynssögunnar? Eða er samsæriskenningin kannski sú að afneita tilvist hans? Í þessum sérstaka jólaþætti Skuggavaldsins rekja Eiríkur og Hulda sögu jólasveinsins frá leyndardómsfullu ráni á beinum heilags Nikulásar til mótunar hinnar bandarísku Santa Claus-ímyndar. Sérstök athygli er veitt íslensku jólasveinunum, sem gætu allt eins verið álitnir skipulagður glæpahringur þar sem hver sveinn gegnir sérhæfðu hlutverki í markvissum matarránsferðum undir stjórn Grýlu. Við veltum fyrir okkur sálfræðinni á bak við „stóru lygina“ – ef hún er þá lygi – og spyrjum hvort við höfum vanmetið getu fullorðinna til að sammælast um blekkingu, en þátturinn tekur óvænta stefnu þegar sjálfur Gáttaþefur ryðst inn í stúdíóið til að verja heiður sinn. Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið okkur ábendingar á [email protected] | 48m 16s | ||||||
| 12/8/25 | #30 - Hver felldi tvíburaturnana? — árásirnar 11. september 2001, síðari hluti | Vissi Bandaríkjastjórn af árásunum 11. september og lét þær gerast – eða átti jafnvel sjálf hlut að máli? Í seinni þætti Skuggavaldsins um hryðjuverkin rýna Hulda og Eiríkur í lífseigar kenningar um aðkomu innlendra aðila, pólitíska eftirmála og mistök bandaríska kerfisins, auk hins umdeilda Sádi-Arabíu-vinkils. Þau fara yfir ný gögn, málaferli aðstandenda og hvernig óvissa og vantraust urðu frjósamur jarðvegur fyrir langlífar samsæriskenningar. Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í [email protected] | 1h 01m 08s | ||||||
| 11/24/25 | #29 - Fall tvíburaturnanna — árásirnar 11. september 2001 fyrri hluti | Voru Tvíburaturnarnir felldir í stýrðu niðurrifi? Í þessum þætti rýnir Skuggavaldið í lífseigustu samsæriskenningar um 11. september: að stjórnvöld hafi komið að sprengingu turnanna og síðar byggingar 7, og að á Pentagon hafi ekki lent farþegaþota heldur flugskeyti. Eiríkur og Hulda skoða af hverju slíkar hugmyndir lifa áfram, þrátt fyrir að bæði hrun bygginganna og árásina á Pentagon megi skýra án slíkra innri leyniaðgerða. Skuggavaldið er í samtarfi við veiðibúðina Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró. Ábendingar sendist í [email protected] | 1h 05m 58s | ||||||
| 11/10/25 | #28 - Úkraína og innrásin – vopnvæðing samsæriskenninga í Rússlandi | Var Úkraína í raun nasistaríki og peð Vesturlanda sem ógnaði Rússlandi? Eiríkur og Hulda rýna í það hvernig rússnesk stjórnvöld byggðu upp kerfisbundna frásögn þar sem nágrannalandið var málað sem leppur siðspilltra vestrænna afla – „nasistaríki“ sem þyrfti að „hreinsa“ – á sama tíma og sjálfstæði þess var afneitað sem tilbúnningi. Þau rekja uppruna og þróun þessarar samsærisorðræðu, sýna hvernig hún varð að hugmyndafræðilegu vopni og forspili innrásarinnar, og greina jafnframt hvernig gagnkvæm tortryggni og andúð Vesturlanda og Rússlands í Kalda stríðinu varð að frjókorni óttans og auðveldaði dreifingu slíkra sagna. Skuggavaldið er í samstarfi við Vesturröst og Plöntuna kaffihús og bístró Sendið ábendingar á [email protected]. | 55m 20s | ||||||
Showing 25 of 50
Pitch Fit is a Pro feature
See how bookable this show is for guests, which brands already advertise, the per-episode ad value, and the best-fit guest and sponsor profile. The numbers are blurred on the free plan.
How readily this show books outside guests like you.
How proven this show is for host-read sponsorships.
For Guests
ProFor Advertisers
ProUpgrade to Pro to unlock guest cadence, sponsor categories, fit scores, and per-episode ad value for this show.
Chart history for Skuggavaldið
Peaked at #7 in IS, top 10 in 1 of 1 tracked market, currently #7 in IS.
| Market | Genre | Peak | Current | Trend |
|---|---|---|---|---|
| IS | — | #7 | #7 | — |
Chart Positions
1 placement across 1 market.
Chart Positions
1 placement across 1 market.